06.03.1936
Neðri deild: 17. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í C-deild Alþingistíðinda. (2475)

54. mál, vinnudeilur

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég hefi tvívegis áður látið í ljós skoðanir mínar opinberlega um þetta mál, sem hér liggur fyrir; get ég að sumu leyti vísað til þess og þarf því ekki að lengja mikið umr. um þetta frv. Ég hefi alltaf, síðan ég fór að kynnast þessum málum nokkuð, talið það vera nauðsynlegt, að gengið yrði frá löggjöf um þetta efni. Það er nauðsynlegt fyrir báða aðilja sjálfa, vinnuveitendur og verkamenn. Það er af ýmsum litið svo á, og sú skoðun er talsvert ríkjandi í þessu landi, að það sé jafnvel til þess að auka vinnudeilur, að vinnuveitendur annarsvegar og verkamenn hinsvegar hafi með sér samtök. En reynslan hefir alstaðar sýnt það, að því lengra sem þessi samtök komast á báðar hliðar og því þroskaðri sem þau verða, því minni hætta stafar af vinnudeilum, ef jafnframt er sett löggjöf um þetta efni, þar sem gefnar eru meginreglur um viðureignina, þegar til vinnudeilna kemur. Þessi er reynslan á Norðurlöndum og í Englandi, þar sem þetta fyrirkomulag er elzt, og svo er einnig annarsstaðar, þar sem því hefir verið komið á. Og nú, þegar vinnuveitendur hér á landi hafa skipað sér í félag, eins og verkamenn hafa áður gert, má segja, að mjög aðkallandi sé orðið, að löggjöf um þetta efni sé sett. Þess vegna er það, að ég hefi haft hug á að láta athuga þetta mál og undirbúa, og er það í samræmi við orð, er ég lét falla í nýársræðu minni í vetur. Því hlýtur það að vera mér ánægjuefni, að þetta frv. er komið fram, því það hlýtur að flýta fyrir umr. um þetta mál og að það verði tekið upp á þann hátt, sem ég álít rétt, að það sé tekið upp. Það liggur að vísu ekki fyrir við þessa umr., og getur sennilega ekki legið fyrir þessu þingi, vilji annars aðiljans um það, hvernig tekið sé á þessu máli. Það liggur ekki fyrir, eins og venja er til þegar slík löggjöf er sett, athugun frá verkamannasamtökunum. Eins og hv. flm. benti á, hefir þessu máli verið ráðið til lykta, m. a. í Danmörku, með samningi milli hlutaðeigenda, septembersamþykktinni svokölluðu, sem gerð var fyrir aldamót og þótti að mörgu leyti marka tímamót í vinnumálefnum Norðurlanda. Undirstaðan á að vera samkomulag milli beggja aðilja, og eins og hv. flm. benti á, er einnig sá vísir að löggjöf um vinnudeilur, sem hér hefir verið settur, en það eru l. um sáttasemjara ríkisins, einmitt settur með samkomulagi og samningaumleitunum milli þessara tveggja aðilja. Það er ákaflega hætt við, að ef löggjöf er sett án þess þessa samkomulags sé leitað, þá nái hún ekki tilgangi sínum, og því hefir þessari reglu verið fylgt, bæði erlendis og hér heima, að svo miklu leyti sem löggjöf hefir verið sett um þetta efni.

Það stendur hér í grg., að þetta frv. hafi verið sent Alþýðusambandi Íslands og leitað um það samkomulags við það. Hinsvegar stendur ekkert um það, á hvern hátt málið hefir verið athugað af hendi þess aðilja, eða hvort það hefir yfirleitt nokkuð verið athugað af verkalýðssamtökunum. Mér virðist þannig gengið frá þessu frv. — þó ég hafi að vísu ekki haft nema mjög stuttan tíma til þess að lesa það, en svona mál þarf að lesa mjög gaumgæfilega —, að það sé mjög líklegt, að því geti orðið vel tekið frá báðum aðiljum. En mér virðist það eðlilegast. um leið og ég vil lýsa ánægju minni yfir, að þetta frv. er komið fram, að málinu sé vísað til n. og athugað á þessu þingi, en síðan verði það rannsakað frekar á milli þinga, annaðhvort af milliþn. eða á annan hátt, og svo reynt að afgr. það á næsta þingi. Ég álít, að slíkur lagabálkur sem þessi, sem er beinlínis ný stjórnarskrá viðvíkjandi þeim deilumálum, sem hafa verið viðkvæmust í þessu landi, megi vel athugast á milli þinga, og sérstaklega af báðum aðiljum, sem hlut eiga að máli. Held ég, að það væri skynsamlegasta og eðlilegasta afgreiðsla þessa máls. Ég mundi vera því meðmæltur, að milliþn. væri skipuð í málið nú, og að hún væri að nokkru leyti skipuð mönnum, sem væru tilnefndir af vinnuveitendum og verkamönnum, og svo einhverjum fulltrúa eða fulltrúum fyrir ríkisstj., og að málið yrði þannig undirbúið lagt fyrir næsta þing.