14.03.1936
Neðri deild: 24. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í C-deild Alþingistíðinda. (2494)

55. mál, laun hreppstjóra og aukatekjur m. fl.

*Pétur Ottesen:

Mér finnst, að ekki megi minna vera en að hv. 2. þm. N.-M. fái nokkra, viðurkenningu fyrir þá umhyggju sína fyrir hag ríkissjóðs, sem fram kemur í þessu máli, einkum þar sem þessi umhyggja kemur nú eins og „þjófur úr heiðskíru lofti“, eins og hann sjálfur hefir komizt svo snilldarlega að orði, þegar litið er á afstöðu hans að öðru leyti gagnvart gjöldum úr ríkissjóði undanfarið.

Það, sem um er að ræða hér, er það, að hækka laun allra hreppstjóra á landinu um svipaða upphæð og hv. 2. þm. N.-M. hefir krækt sér í á einu ári úr sjóði ríkisins. Því að ef litið er á allt það, sem hv. þm. hefir notið vegna undirgefni sinnar og auðsveipni við landsstjórnina, þá held ég, að í ljós myndi koma, að hann hefði innbyrt síðasta ár eitthvað nálægt þessum 14 þús. krónum, sem hér er um að ræða. — Þessi hv. þm. fer nú viðurkennandi orðum um bágan hag ríkissjóðs og telur þessi auknu útgjöld vera ríkissjóði ofraun. „Eins og nú er háttað högum þjóðarinnar og launakjörum alls almennings, sé ég ekki ástæðu til að hækka laun hreppstjóra“, segir hann. Hann segir, að störf hreppstjóra séu lítil og þeir eigi fyrir þau lítil laun. Hann segir, að samanborið við aðra og getu þjóðarinnar verði hann að álíta, að þótt laun hreppstjóranna séu ekki há, megi þau ekki hækka nú, vegna vangetu ríkissjóðs. Ég get tekið undir allt þetta með honum hvað ríkissjóð snertir, og get fallizt á það, að ástandið sé ekki betra en það, að halda verði áfram að krossfesta hreppstjórana, m. a. vegna hv. 2. þm. N.-M. og annara, sem hafa haft sömu aðstöðu til þess að sækja feng í bú sitt úr ríkissjóði. Það má því vel vera, að ég geti fylgt honum í þessu máli. En hvað sem því líður, vildi ég ekki láta hjá líða að gefa honum þessa viðurkenningu fyrir þau straumhvörf, sem virðast nú hafa orðið allt í einu í hans pólitíska lífi.

Samkv. frv. eiga hreppstjórar í hreppum með 200 íbúum að hafa 140 kr. á ári, en 180 kr. í hreppum með 300 íbúum. Þetta mega nú teljast allfjölmennir hreppar. Samt felur hv. 2. þm. N.-M. þetta of rífleg launakjör. Ennfremur vex honum mjög í augum, hve aukatekjur hreppstjóra eru hækkaðar með frv. Ég vil nú benda þessum hv. þm. með sín 14 þús. kr. laun á ári á það, að hreppstjórarnir eiga nú samkv. frv. að fá 7 kr. á dag í stað 6 áður. Ef þeir eru lengur að heiman en sólarhring, eiga þeir að fá tímakaup, og er það nú ákveðið 50 aurar í stað 25 aura áður. Svona vel á nú að bú, að hreppstjórunum, ef þetta frv. verður að lögum, sem ef til vill er varhugavert vegna hins bága hags ríkissjóðs, eins og hv. 2. þm. N.-M. segir. En þess verður þá jafnframt að vænta, að hv. 2. þm. N.-M. taki meira tillit til hins þrönga fjárhags ríkissjóðs en hann hefir gert í viðskiptum sínum við hann undanfarið.

Hv. þm. gerir lítið úr störfum hreppstjóranna og heldur því fram, að fyrir lítil störf eigi menn að fá lítil laun, sem er alveg rétt, þótt nú virðist vera búið að snúa þessu við, eins og kannske mætti sanna með dæmum af tekjuöflun hv. 2. þm. N.-M. En þess er að gæta, að þótt skýrslugerðir hreppstjóra væru litlar fyrir mörgum árum, hefir verið hlaðið á þá ýmsum nýjum skýrslugerðum og innheimtum undanfarið. Ég skal ekki segja um það, hvort þessar skýrslugerðir bera mikinn árangur, en þessa er krafizt af þeim. Auk þess má geta þess, að þinggjöld innheimtast því síður á gjalddaga sem meira kreppir að, svo að þau greiðast hvorki á manntalsþingum í sveitum né á gjalddaga í kaupstöðum. Þessi innheimta lendir öll á hreppstjórunum í sveitunum og kostar mikla fyrirhöfn. Um borgun frá sýslumönnum er ekki að ræða, enda yrðu þeir þá að greiða hann af skrifstofukostnaði sínum, en eftir því sem liggur fyrir þessu þingi, þykir skrifstofuféð ekki of ríflega úti látið.

Ég verð að játa það, að ég tel þessar kjarabætur lítilfjörlegar fyrir hreppstjórana, en þó máske ofvaxnar ríkissjóði eins og stendur. Ég geri því ráð fyrir, að ég muni leggjast á sveif með hv. 2. þm. N.-M í þessu máli, og það því fremur sem ég veit, að eftir þessi straumhvörf hjá honum hlýtur hann sjálfur að sýna ríkissjóði meiri sjálfsafneitun hér eftir en hingað til.