09.03.1936
Neðri deild: 19. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í C-deild Alþingistíðinda. (2549)
68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
*Pétur Halldórsson:
Herra forseti! Ég skil það vel, að það er mikill vandi að fara með fjármálin á þessum erfiðu tímum, en samt get ég ekki stillt mig um að gera fyrirspurn um þetta, þar sem hv. þm. G.-K. hefir að hálfu leyti upplýst þetta mál, sem mér virðist vera mjög mikilsvert. Hæstv. fjmrh. lítur svo á, að þessi samningur, sem gerður hefir verið um lántökuna hjá olíufélögunum, sé ekkert sérstaklega merkilegt mál, og sagði hann, að þetta skapaði ekki neitt fordæmi í þessu efni. Það er gott að heyra þetta, en það er nú samt mjög mikið vafamál, hvort þetta tiltæki skapar ekki einmitt fordæmi; ég held, að það þurfi að fullyrða ýmislegt fleira fyrst, áður en hægt er að segja með vissu, að það sé ekki einmitt verið að gera það; ég óttast, að það séu mjög miklar líkur fyrir því, að hér sé verið að skapa fordæmi, og það fyrst og fremst vegna þess, að nú í augnablikinu eru fjárhagshorfur okkar vægast sagt mjög ískyggilegar, svo að við höfum að undanförnu ekki að öllu leyti verið okkar eigin herrar í rauninni að því er fjármálin snertir, en orðið að sæta kostum, sem aðrir hafa sett okkur. Það er því sýnilegt, að hér er hæstv. stj. einmitt að setja kosti, sem ég óttast því miður, að orðið geti til þess að skapa fordæmi í þessum efnum. Ég skil það vel, að þessi ráðstöfun hæstv. stj. er gerð til þess að komast hjá því að leita láns erlendis í þetta skiptið, en það er ekki útilokað, að svipað geti staðið á einhverntíma seinna, og það væri undir þeim kringumstæðum, sem um fordæmi getur verið að ræða í þessu efni. Þess vegna er það, sem hér hefir verið gert, vissulega alls ekki sama og tekið hefði verið lán í sterlingspundum á frjálsum markaði erlendis. Það er að vísu sama fyrir skuldaskilasjóð, sem á að njóta þessara peninga, hvort hann fær því í íslenzkum krónum þar, sem lánið er tekið, en það er ekki þar með sagt, að þetta sé samskonar lántaka eins og ef lánið hefði verið tekið í pundum á erlendum markaði. En það, sem hér er búið að gera, getur einnig skapað hættulegt fordæmi að öðru leyti, því að eins og hæstv. fjmrh. minntist á, er útlit fyrir, að kolaútflytjendur í Bretlandi, sem selja kol hingað til lands, hafi gert samtök um að selja ekki kol til Íslands nema gegn bankatryggingu eða tryggingu fyrir því, að andvirði vörunnar verði greitt á réttum tíma. Við sjáum m. ö. o., að það er verið að gera samtök víðsvegar erlendis í viðskiptunum við Ísland, og það er vitanlega mjög margt, sem komið betur til greina í sambandi við viðskipti Íslendinga við aðrar þjóðir í nánustu framtíð, eins og fjárhagur okkar er nú bágborinn og fátæktin mikil, því að enda þótt henni hafi verið leynt ettir föngum hingað til með opinberumráðstöfunum, er hún samt að komast upp fyrir alvöru, með þeim eftirköstum, að erlendis er svo litið á fjárhag Íslendinga, að menn segjast ekki geta skipt við okkur, nema með því móti, að gerðar séu alveg sérstakar öryggisráðstafanir til þess að sú vara, sem hingað er seld, verði borguð í tæka tíð. Allt fram að þessu hefir enginn hörgull verið á sölu nauðsynjavarnings til Íslands, án þess að sett hafi verið nein skilyrði, en nú bregður svo við, að framboð á ýmsum vörutegundum til Íslands er farið að vera bundið skilyrðum, fyrst og fremst um það, eins og sagt er um kolasöluna hingað til lands, að stj. tryggi seljendunum yfirfærslur jafnóðum og skuldirnar falla í gjalddaga: þeim, sem ekki fá slíkar tryggingar, getur staðið til boða sú trygging, að ríkið taki innieignir þeirra hér að láni gegn því að borga peningana á næstu árum í ákveðnu gullverði. Þetta eru náttúrlega ágæt kjör, en þau geta ekki aðrir fengið en þeir, sem taka sig saman um að setja slík skilyrði í verzlun. Að þessu leyti er komið inn á nýja braut í þessu máli, en þótt þetta ástand megi ef til vill teljast eðlileg afleiðing af viðskiptum landsins við útlönd síðustu ár, þá má samt ekki segja, að þetta sé alveg hættulaust og óhætt sé að ganga að hvaða tilboðum, sem frá þessum seljendum koma, til þess að leysa vanda augnabliksins. Ég skal ekki fullyrða, neitt um það, að hér hafi verið gerð óforsvaranleg ráðstöfun í þetta sinn með því að gera þennan samning við olíufélögin; ég er ekki nógu kunnugur þessu máli til þess að geta sagt neitt um það út af fyrir sig, en þar sem mér þótti hinsvegar koma fram merkilegar nýjungar bæði hjá hv. þm. (G.-K. og eins í frásögn hæstv. fjmrh., þá þótti mér ástæða til að spyrjast fyrir um það, hvernig þessu máli væri varið, ekki sízt þar sem manni getur dottið margt í hug í þessu sambandi, þegar svona stór og öflugur aðili á í hlut eins og olíufélögin eru, t. d. það, að þau hafi átt upptökin að þessu. Það gæti vel komið til mála, að þau settu sína kosti og hótuðu að hætta að selja olíu til landsins, nema gegn því skilyrði, að þau fái ríkisábyrgð fyrir greiðslu á vörum sínum. Það er ekki hægt að neita því, að svo virðist, sem þessi lántaka, sem hér um ræðir, geti alveg eins verið krafa frá olíufélögunum eins og ósk hæstv. stj. Svo getur þetta aftur verkað þannig, eins og hv. 6. þm. Reykv. tók fram, að öðrum en þessum tveimur olíuhringum verði ekki fært að flytja olíu hingað til lands; þar með eru þessi félög búin að fá einskonar einokunarheimild til verzlunar með olíu hér á landi. Af þessu sést það, að það er margt, sem komið getur til greina í þessu sambandi, og margt, sem taka þarf tillit til. Ég ásaka ekki hæstv. stj. eða þann, sem gert hefir þennan samning, en ég vil benda á þessi atriði, sem geta beinlínis orðið til þess, að utanríkisverzlun okkar stöðvist, nema með því móti, að ríkið gefi trygga ríkisábyrgð fyrir öllum aðalnauðsynjavörum, sem til landsins flytjast.
Hæstv. ráðh. sagði, að þetta skapaði ekki fordæmi, en ég vil betra benda honum á, að hann er ekki einráður um það, hvort þetta verði fordæmi; því ráða líka þeir, sem selja vörurnar hingað, sökum þess m. a., að nú er svo komið um margar stórar vörutegundir, að seljendur þeirra gera með sér samtök um söluna, vegna þess hvað markaðurinn er þröngur, til þess að gæta sinna hagsmuna sem bezt. Það er því ósk mín, að þetta, eða annað svipað því, sem hér er verið að gera, verði ekki til þess að skapa fordæmi í framtíðinni.