31.03.1936
Neðri deild: 38. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í C-deild Alþingistíðinda. (2560)
68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
*Stefán Jóh. Stefánsson:
Eins og hv. þm. G.-K. gat um og nál. á þskj. 242 ber vitni um, hefi ég ekki getað orðið sammála meðnm. mínum um afgreiðslu frv. sjálfs, sem fyrir liggur. Ég þarf í rauninni ekki að gera grein fyrir minni afstöðu miklu frekar en stendur í nl., sem n. gaf út sameiginlega. Þar eru teknar fram þær ástæður, að ég telji í fyrsta lagi, að gildandi ákvæði fullnægi þörfinni, sem fyrir hendi er. Ég á við, að á þeim tímum, sem nú eru, þegar svo miklir erfiðleikar eru á um útvegun gjaldeyris, þá sé því eftir atvikum sæmilega fyrir komið hvað snertir innkaup til útgerðarinnar, þar sem gjaldeyrisnefnd er heimilt skv. reglugerð frá 1935 að veita útvegsmönnum, sem eiga skip, sem selja afla sinn erlendis, leyfi til að ráðstafa tiltekinni upphæð í hverri ferð til þarfa útgerðarinnar. Þessu mun hafa verið hagað þann veg í framkvæmdinni, að útgerðarmenn, sem hafa selt fisk erlendis, hafa fengið frjálsa valútu til umráða til þess að kaupa nauðsynjar handa útgerðinni. Eftir því sem komið er gjaldeyrismálunum yfirleitt, þá álít ég þetta eftir atvikum sæmilegt. Í annan stað álít ég, að frv., sem meiri hl. n. leggur til að samþ. verði, muni geta valdið nokkrum örðugleikum í framkvæmdinni; fyrst og fremst vegna þess, að fleiri muna fylgja á eftir, sem álíta sig hafa þörf fyrir frjálsan gjaldeyri til afnota til innkaupa á nauðsynjavörum. Í annan stað getur þetta valdið nokkrum erfiðleikum um sölu atfurða eins og saltfisks, ef þetta nær fram að ganga. Það verður bezt skýrt með því að upplýsa, að meginþorrinn af öllum saltfiskframleiðendum hefir veðsett bönkunum fiskinn áður en þeir hafa selt á erlendum markaði. Eigendur fisksins eru því skyldugir fyrst og fremst að fullnægja veðskuldbindingunum hjá bönkunum og greiða þeim upp lán, sem hvíla á fiskinum. Svo það gæti vel farið svo, að þetta ræki sig á þá heimild, sem útvegsmönnum er nú ætlað að fá til frjálsra afnota útlendrar valútu fyrir seldar afurðir erlendis. Af þessum 2 ástæðum, sem ég hefi nefnt, verð ég að leggja á móti frv. aftur er ég einn af meiri hl., sem fylgir þeim brtt., sem fram eru bornar við frv. um gjaldeyrisverzlun á þskj. 235, sem hv. þm. V.-Ísf. hefir gert grein fyrir.