01.04.1936
Neðri deild: 39. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í C-deild Alþingistíðinda. (2568)

68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

Jóhann Jósefsson:

Ég bjóst nú ekki við því og hafði ekki heyrt þess getið, að neinn hefði skilið það svo, að þetta mál hafi verið rætt hér þannig sérstaklega, að með því væri stefnt að gengislækkun ísl. krónu. En hv. 2. þm. Reykv. virðist vilja skilja flutning þessa máls á þann veg. Það má sjálfsagt segja margt bæði með og móti réttmæti þess að lækka gengi ísl. krónu. Hann talaði um það, hv. 2. þm. Reykv., að ef krónan yrði lækkuð, þá mætti búast við verkföllum. Nú, hvað — eru ekki verkföll hér annanhvern dag einhversstaðar á landinu? Ég ímynda mér, að fá lönd í heiminum gætu sýnt glæsilegri útkomu, ef miðað er við verkföll og glæsileikinn metinn eftir tölu verkfalla, heldur en Ísland. Ég fullyrði, að erlendi gjaldeyririnn er tekinn af framleiðendum landsins við verði, sem er enganveginn réttlátt, samanborið við raunverulegt verð ísl. krónu. Reyni þeir góðu menn, sem hneykslast á þessum ummælum, að selja ísl. krónu á frjálsum markaði og gæti þeir að, hvað þeir fá fyrir hana. Hér hefir verið árum saman og er enn haldið uppi gengi, sem enganveginn á stoð í raunverulegu mati á verðgildi ísl. krónu á frjálsum markaði og gæti þeir að, á framleiðendum í landinu. Gjaldeyririnn er tekinn af bændum og fiskimönnum, sem reka áhættusaman atvinnuveg, og fenginn í hendur verzlunum og öðrum innflytjendum, til greiðslu fyrir erlendan varning sem seldur er við háu verðlagi og seljendur hans hér hafa öruggan atvinnuveg við og stórgræða á honum.

Hæstv. ráðh. og hv. 2. þm. Reykv. vildu ekki fallast á, að útgerðarmenn ættu rétt á að hafa umráð með gjaldeyri þeim, sem þeir sjálfir afla og þeir nauðsynlega þurfa til kaupa á veiðarfærum, þrátt fyrir það, að hæstv. fjmrh. hefir lýst því yfir, að hann mundi fallast á, að menn fengju að halda eftir gjaldeyri til þess að kaupa fyrir kol, salt og olíu til útgerðar sinnar. Þetta byggði hæstv. ráðh. á því, að það væri svo einfalt að hafa eftirlit með gjaldeyrisútlátum fyrir þessar vörur, en örðugra að því er snertir veiðarfærin. (En ég skal ekkert segja um, hversu mikið kappsmál hv. 2. þm. Reykv. er, að útgerðarmenn fái að kaupa t. d. olíu á þennan hátt. Ég sé ekki, að þessi ástæða hæstv. ráðh. hafi við mikil rök að styðjast. Það er ekki talið eftir sér hér að koma upp hverri stofnuninni á fætur annari, þegar verið er að tala um að lögleiða að skásetja þetta og hitt. Hér er á dagskrá mál, hvers samþykkt mundi leiða af sér, að skrásetja yrði allar fjárbyssur landsmanna og hvern byssuhólk, sem hangir ryðgaður uppi í sperrum. En þegar um það er að ræða að létta undir með útvegsmönnum viðvíkjandi veiðarfærakaupum þeirra, þannig að leyfa þeim að halda eftir gjaldeyri fyrir veiðarfæri, þá er höfuðástæðan hjá hæstv. ráðh. fyrir því, að slíkt fæst ekki, að það kosti svo mikla fyrirhöfn og sé of umfangsmikið fyrir þá, sem eiga að fylgjast með þessum kaupum, t. d. bankana. En þetta er einskisvert atriði. Í mínum augum er stærsta atriðið í sambandi við þetta mál sú staðreynd, að nú undanfarnar vikur hafa útvegsmenn margir staðið uppi ráðalausir, vegna þess að þeim hefir verið beinlínis meinað að afla sér nauðsynlegra veiðarfæra. Og nú skal ég víkja að því, sem ég drap á hér við umr., og nefna dæmi.

Allir vita, hvernig vertíðin gengur nú hér við Faxaflóa og á Vestfjörðum. Nú hefir verið talsverður reytingur í net í Vestmannaeyjum undanfarið. En skortur er svo mikill á netum manna á meðal, að þessi veiði, sem þar stendur til boða, hagnýtist ekki nema að litlu leyti, sem stafar aftur af því m. a., að það hefir verið dregið óhæfilega lengi að veita útgerðarmönnum leyfi til innflutnings á netum. Það er þýðingarlítið að veita leyfi til innflutnings á veiðarfærum, þegar komið er fram á vertíð. Það verður að hafa þá fyrirhyggju í því efni, að menn standi ekki uppi ráðþrota fyrir veiðarfæraleysi, þegar veiði er í boði. Ég veit ekki, hve miklu aflatjóni t. d. Vestmannaeyingar verða fyrir nú á vertíðinni vegna skorts á veiðarfærum. En útlit er fyrir, að það verði mjög verulegt. Þess vegna verður það fyrir mér ekkert höfuðatriði í þessu máli, hvort það er einfaldara fyrir bankana að hafa eftirlit með innflutningi aðeins á kolum, salti og olíu, ef útgerðarmenn fá að halda eftir gjaldeyri til nauðsynlegra innkaupa á þeim vörum til útgerðar sinnar, heldur en þó að útgerðarmenn fengju að hafa umráð með þeirra eigin gjaldeyri nægilega til þess einnig að kaupa veiðarfæri. Höfuðatiðið fyrir mér er fyrst og fremst það, að trygging sé fyrir því, að menn geti í tæka tíð aflað sér þeirrar vöru og fái að nota sinn eiginn gjaldeyri til þess, og í öðru lagi, að þeir séu ekki látnir sæta neinum afarkostum með gjaldeyrisráðstöfunum.

Hv. þm. Hafnf. kom með nýjar mótbárur í þessu máli, sem ekki snertu beint gjaldeyrismálin, sem voru þyngstar á metunum frá hans sjónarmiði. Hv. þm. minntist á það, að við hefðum leitt hesta okkar saman hér á þingi í fyrra, vegna þess að ég lagði á móti þeim till. hans að tolla útlend veiðarfæri til ágóða fyrir iðnrekendur, sem búu til veiðarfæri hér á landi. Hv. þm. ætti að gera sér það ljóst, að veiðarfæraframleiðslan hér á landi er ekki enn sem komið er komin í það horf, að hún sé fyllilega samkeppnisfær við erlenda framleiðslu. Umhyggja hv. þm. fyrir íslenzkum iðnaði er lofsverð. En ég vil spyrja hv. þm. Hafnf. og aðra blinda formælendur íslenzks iðnaðar, hvort þeir álíti ekki nógu langt gengið eins og t. d. nú er komið, að það er verið að tylla undir allar mögulegar iðngreinar, og svo er heimtað af landsmönnum, að þeir kaupi innlendu vöruna án tillits til, hvort hún er betri eða verri, dýrari eða ódýrari en samskonar vara erlendis frá. Það eru til fleiri sjónarmið á þessu máli heldur en iðnrekendanna sjálfra. Það eru líka til sjónarmið bændanna og fiskimanna í landinu. Það eru sannarlega takmörk fyrir því, hvað skerða má markaðsmöguleikana fyrir íslenzkar vörur, fisk og kjöt, annarsstaðar í heiminum með því að tildra upp íslenzkum iðnaði, sem á sumum sviðum er vitanlega fullboðleg vara, en aftur byggist hann á sumum sviðum eingöngu á því, að aðflutningur útlendu vörunnar er annaðhvort bannaður eða hún tolluð, svo að samkeppnin er alveg horfin úr sögunni. Þetta er að vísu gott fyrir iðnrekendur, en hvernig fer, þegar allir eru orðnir iðnrekendur? Hverjir eiga þá að taka við afurðum bænda? Hv. þm. ætti að skipta um hlutverk annað veifið og líta á þessi mál frá sjónarmiði bóndans og fiskimannsins. Hv. þm. var að gera upp á milli innlendrar og útlendrar færagerðar og veiðarfæragerðar yfirleitt. Ég trúi því vel, að íslenzk færi séu góð; en höfuðatriði þessa máls er það, að menn eigi þess kost að fá til útgerðarinnar það, sem þeir þurfa, þar, sem hentugast er að kaupa það, hvort sem það er erlendis eða innanlands. Hæstv. ráðh. kannaðist við það, að það mundi hvergi annarsstaðar vera lagt bann á, að menn fari frjálsir úr landi. Ég geri ráð fyrir því, að hæstv. ráðh. hafi rétt fyrir sér í því, að fjhn. sé hér að leggja út á nýja braut. Annars var það eftirtektarvert, að hæstv. ráðh. var að bera mér það á brýn, að ég hefði verið að „slá um mig“, sem kallað er, með því að vera að tala um frelsi. Það er nú komið svo, að það þykir óhæfa, ef maður nefnir frjálsræði til handa einstaklingum á nafn hér á hv. Alþ., án þess að maður sé borinn þeim brigzlyrðum, að maður sé að „slá um sig“. Hæstv. ráðh. sagði, að þetta hefði verið eina leiðin, sem fjhn. hefði fundið til þess að hafa hömlur á gjaldeyrinum og eftirlit með, að hann yrði ekki misnotaður. Mér þykir einkennilegt, ef þetta er eina leiðin í þessu efni, og ég vil yfir höfuð fallast á þær skoðanir, sem fram komu hjá hv. þm. G.-K., að þessi leið verði sannarlega ekki heppileg. Ég get ekki fallizt á, að það sé heppilegt að gera fólkið að bannvöru, sem ekki megi fara ferða sinna út fyrir landsteinana án þess að þurfa að fá til þess sérstakt leyfi.

Ég get ekki verið að hopa á hæli með þessa till. mína um veiðarfærin, sem hefir komið miklu róti á huga hv. 2. þm. Reykv. Ég fæ ekki skilið, hvað það geri illt, þó veiðarfærin séu talin þarna með. Enda held ég, að dm. muni fallast á, að það sé sjálfsagt, að veiðarfærin fylgi upptalningunni, sem þarna er nefnd. Þá eru allar höfuðvörurnar nefndar, sem útgerðarmenn þurfa að nota. Ef það hefir verið meining hæstv. ráðh. að láta þetta frv. ná fram að ganga með þeim vörum, sem í því voru, þá ætti það ekki að standa í vegi fyrir fylgi hans við málið, þó að veiðarfærunum væri bætt við. Annars verður það að skeika að sköpuðu, hvaða hlutskipti útgerðarmönnum verður ætlað. Það bíður þá síns tíma, að útgerðarmenn athugi sinn gang í því, þegar neyðin rekur þá til að hrista af sér þá fjötra, sem lagðir eru á atvinnufrelsi þeirra.