01.04.1936
Neðri deild: 39. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í C-deild Alþingistíðinda. (2575)

68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Sigurður Kristjánsson:

Þó að ég sé meðflm. frv. á þskj. 110, hafði ég ekki hugsað mér að taka til máls og hélt, að ekki myndu verða meiri umr. um það en svo, að ég þyrfti ekki að blanda mér inn í þær. En þessar umr. hafa nú teygzt meira en ég bjóst við, eru bæði komnar á breiðari grundvöll, og ég tala ekki um lengdina. Því þykir mér rétt og nauðsynlegt fyrir mig, sem er 2. flm. málsins, að segja nokkur orð um þennan skilning, sem lagður er í frv., og einkanlega álit meiri hl. fjhn. Ég skil till. meiri hl. n. svo, að hennar till. væru þau atriði, sem nm. allir getu komið sér saman um og myndu fylgja gegnum þykkt og þunnt, en um önnur atriði hefðu menn óbundnar hendur, og að það raskaði ekki að neinu leyti þeirra samkomulagi um þau atriði, sem þeir hafa skrifað undir. Ég hefi ekki heldur heyrt neinu nm. birta nánari skilning á afstöðu sinni til málsins. En hæstv. fjmrh. tók fram hér áðan, að ef eitthvað annað og meira yrði samþ. en till. þær, sem upphaflega komu fram, myndi það leysa menn frá áður hugsuðu og heitnu fylgi við till. meiri hl. fjhn. Ég held, að þetta hljóti að vera misskilningur hjá hæstv. ráðh., og samkv. mínum skilningi á þessum hlutum er ég ákveðinn í að ljá atkv. mitt þeirri till., sem gengur nær upphaflega frv., og læt afdrif þeirrar till. ekki raska því, að ég mun greiða atkv. með till. meiri hl. fjhn. á eftir. Að öðru leyti ætla ég ekki að blanda mér í umr. Mér þykir þó rétt að geta þess, út af því, að það hefir komið í ljós, að einstaka maður lítur svo á, að verið sé að ganga á rétt iðnaðarins og jafnvel verzlunarinnar með þessu frv., að stuðningur við þessa tvo atvinnuvegi, iðnað og verzlun, á auðvitað að koma fram í allt öðru en því, að einoka vöru til þess að þessi starfræksla geti lifað á óeðlilegu verðlagi á nauðsynjavörum almennings. Mér er ekki kunnugt um atvinnurekstur hér á landi, sem er rekinn með þeim hagnaði, að hann sé fær um að taka þessa byrði á sig fyrir þessa atvinnugrein. Ég álít ekki heldur haldgóðan stuðning, sem á þennan hátt er veittur. Hinn eini haldgóði stuðningur við iðnað og verzlun, sem unnt er að veita, eru fríðindi, sem beinlínis eru lögð fram af ríkinu, annaðhvort sem fjárhagaslegur stuðningur beint eða óbeint.

Hv. 2. þm. Reykv. talaði um það, að á því myndi vera mikil hætta, að gengi ísl. krónunnar lækkaði, ef þetta mál næði fram að ganga. Án þess að ég ætli á nokkurn hátt að fara inn á það mál sérstaklega, gengismálið, vil ég þó benda á það, að rök hans fyrir þessu voru ákaflega hæpin. a. m. k. þau, að hér væri verið að kippa undan eftirliti með miklum innflutningi. Hv. þm. G.-K. hefir lýst mestu af því, sem ég þurfti sérstaklega að gera að umtalsefni til svars ræðu hv. þm. Ísaf. Mér þykir vænt um þetta, því að það hefir verið góður málsfriður með okkur hv. þm. Ísaf. og minn hugur í hans garð betri síðan hin pólitísku sifjamál fóru að spillast í stjórnarhjáleigunni. Ég tel því, að ég sé mjög heppilega frá því leystur að fara í kappræður um þetta mál við hann. En játa skal það, að mér þótti koma nokkuð leiðinlega fyrir augu, að hann skyldi vera andvígur þessu frv., sem allir aðrir líta vissulegu svo á, og e. t. v. hann sjálfur við nánari athugun, að stefni til hagsbóta fyrir útgerðarmenn, stærri sem smærri. Ég ætla þá að láta falla niður það, sem ég hafði annars hugsað mér að segja um hans ræðu. Þó vildi ég skýra honum frá því, að ég álít, að olía og salt muni vera alveg eins vörur til smáútgerðar eins og stórútgerðar, og það er öllum hv. þm. sjálfsagt kunnugt um. Útgerðarmenn hafa og munu hér eftir hafa félagsskap með sér um kaup á þessum vörum í heilum skipsförmum, ef þeim er það frjálst og ekki lagðar á það hömlur vegna gjaldeyrisráðstafana. Ég ætla að sýna minn góða hug til hv. þm. Ísaf. einmitt með því að veita stuðning hans till, og auðvitað er það ekki gert af eintómri óeigingirni, því að till. eru algerlega þær sömu, sem felast í okkar upphaflega frv. Ég vil þó í þessu sambandi spyrja hann, hvernig hann ætlar að samræma þau ummæli, sem hann hafði um frv. okkar hv. þm. G.-K. þá, sem voru á þá leið, að frv. væri þýðingarlaust, við það, að hann kemur nú með till. um að færa það algerlega í sama horf og okkar frv. var.