03.04.1936
Neðri deild: 41. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í C-deild Alþingistíðinda. (2579)
68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
Forseti (JörB):
Út af ummælum hv. þm. Ísaf. um meðferð á þáltill. skal það fram tekið, að ef sök er á um þá meðferð, hvílir hún á mér, því jafnan liggja mörg mál fyrir, og það fleiri en annað er, og hefi ég látið þessa þáltill. ásamt ýmsum öðrum málum sitja á hakanum.