03.04.1936
Neðri deild: 41. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í C-deild Alþingistíðinda. (2584)
68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
Finnur Jónsson:
Ég þarf engu nýju að svara hv. þm. G.-K. Það kom ekkert það fram í þessari síðustu ræðu hans, sem ég hefi ekki áður svarað. Hann las hér upp bréf frá minni hl. fjhn., sem sannar það, að hann hefir engin rök fært fram fyrir því, að ríkissjóður þoli þunn tekjumissi, sem er af því að fella niður útflutningsgjaldið, og má ég vera honum þakklátur — en til þess hefi ég annars ekki oft tækifæri — fyrir, að hann hefir þannig sannað mitt mál, viðvíkjandi því, hvort ég sé ábyrgur fyrir skuldum samvinnufélags Ísfirðinga, get ég upplýst það, að þar er sameiginleg ábyrgð, og skuldheimtumennirnir geta gert þá ábyrgð gildandi, ef þeim sýnist svo, eins gagnvart mér eins og öðrum, og það er ósatt, að ég eða aðrir hafi komið mér undan þessari ábyrgð.
Hann spurði, hvers vegna svo ríkir menn hefðu leitað til skuldaskilasjóðs. Ég hefi aldrei sagt, að það væru ríkir menn í Samvinnufélagi Ísfirðinga. Enda er engin ástæða til þess að halda, að á Ísafirði sé svo miklu betri afkoma en alstaðar annarsstaðar, og allra sízt eftir slík aflaleysisár sem nú hafa gengið yfir Vestfirði.
Hann rengdi, að mat og tölur matsmanna skuldaskilasjóðs væru réttar, en hann verður þá að sýna og sanna, að það sé annað en ég sagði.
Hv. þm. G.-K. þarf ekki að halda, að ég hlaupi upp til handa og fóta og stefni honum og Morgunblaðinu fyrir hverja lygi, sem um mig er sögð af þessum göfugu aðiljum. Ég finn ástæðu til þess einstöku sinnum að gera aths. við þessar ósannindaklausur og leiðrétta stórfelldustu lygarnar, en ef ég ætti að fara að taka upp þann sið að stefna fyrir meiðyrði, þá mundi það bókstaflega eyða öllum tíma mínum.
Ég hefi hinsvegar ekki sagt, að skuldaskilasjóður endilega liti svo á, að félagið geti risið undir skuldunum. Það er annað, hvort á að meta eign eins og kostar að búa hana til, eða hvort gert er ráð fyrir, að sá atvinnurekstur, sem eignina á að nota til, sé líklegur til þess á hverjum tíma að geta staðið undir andvirði eignarinnar — afborgunum, vöxtum og viðhaldi. Hv. þm. G.-R. þarf ekki annað en hringja til skrifstofustjóra skuldaskilasjóðs og spyrja hann, hvort ég hafi ekki farið rétt með töluna. Ég get gefið honum leyfi til að fá þessar upplýsingar, því mér þykir leiðinlegt, að hann fari í óleyfi að skyggnast í skjöl þeirra stofnana, sem hann hefir ekki lögmætan aðgang að. — Ég ber höfuðið hátt á meðan þetta fjölmenna félag skuldar ekki meira en hv. þm. G-K. í Kveldúlfi.