28.03.1936
Neðri deild: 36. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 352 í B-deild Alþingistíðinda. (260)

2. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Frsm. (Sigfús Jónsson):

Þegar þetta mál var til 2. umr. hér í d., komu fram við það tvær brtt., sem teknar voru aftur til 3. umr., til þess að fjhn. gæfist kostur á því að athuga þær. Fjhn. hefir nú athugað þessar tillögur.

N. telur eftir þessa athugun sína, að ekki sé rétt að svipta presta þeirri launauppbót, sem þeim var veitt sem skrifstofufé fyrir nokkrum árum. Launakjör presta eru nú einu sinni þannig, að þá munar talsvert um 200–300 kr. á ári. En til þess að vega á móti þessum útgjöldum leggur n. það til, með tilliti til erfiðs fjárhags ríkissjóðs, að fresta framlagi árið 1937 til læknishéraða- og prestakallasjóða, og flytur um það brtt. á þskj. 236. Sjóðir þessir voru stofnaðir með lögum 1933 og ætlazt til þess, að það, sem sparast í embættislaunum við það, að læknishéruð og prestaköll standa óveitt, leggist í sjóði, sem gangi til þess að gera læknishéruðin og prestaköllin eftirsóknarverðari en áður, og sé varið til bygginga læknisbústaða og kirkjulegrar starfsemi. Standi læknishéraðasjóðirnir undir stjórn landlæknis, en hinir undir stjórn kirkjuráðs.

Árið 1935 námu þessir sjóðir ca. 15 þús. kr. Þótt framlag til þessara sjóða yrði sparað um eitt ár, er ljóst, að það kemur ekki eins harkalega niður og það að svipta presta tekjum sínum.

Hinsvegar hefir n. ekki getað fallizt á brtt. um það, að fella niður úr frv. 15. lið, um lækkun framlags úr ríkissjóði til sýsluvegasjóða. Þar sem aðeins 4 sýslur hafa lagt á hámarksgjald til sýsluvegasjóða, eða 6‰, virðist það bera vott um það, að sýslurnar séu ekki yfirleitt fíknar í það að fá þessar upphæðir úr ríkissjóði. Auk þess er nú komið fram frv. um breytingar á vegalögunum, og samkv. því eiga mjög margir sýsluvegir að takast í þjóðvegatölu. Samþykkt þess frv. mundi því verða til þess að létta mjög á sýsluvegasjóðunum. Niðurstaða n. er því sú, að frv. verði samþ. óbreytt að öðru leyti en því, að skrifstofufé presta haldist og framlagi til læknishéraða- og prestakallasjóða verði frestað árið 1937.