17.04.1936
Neðri deild: 50. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í C-deild Alþingistíðinda. (2601)

68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Fjmrh. (Eysteinn Jónason):

Hv. 6. þm. Reykv. sagði, að ekki væri hægt að ætlast til, að stjórnarandstæðingar gætu komið með allar aðfinnslur sínar við stjórnina í eldhúsumr., — til þess hefðu þeir of lítinn tíma. Þeir hefðu, sakir tímaskorts, ekki tækifæri til þess að koma fram með nema lítinn hluta þeirra. En ég verð nú að segja, að þegar það er athugað, hvernig þeir notuðu tímann við síðustu eldhúsumr., þá sé þetta dálítið hæpin röksemd, því að eins og menn muna, þá höfðu þeir fulla 6 kl. tíma til umráða við þá umr., en meginið af tímanum notuðu þeir til þess að tyggja upp það, sem þeir voru margbúnir að segja áður, bæði í ræðum og ritum. Þeir hefðu því áreiðanlega, öllum að skaðlausu, getað notað eitthvað af þeim tíma, sem þeir notuðu til endurtekningar sínum fyrri blekkingum, til þess að ræða þetta mál. En eins og ég hefi tekið fram, þá hafa þeir bara ekki fundið ástæðu til þess.

Eins og kunnugt er, var því oft haldið fram áður af stjórnarandsfæðingum, að kaupfélögunum væri gert sérstaklega hægt um að fá innfluttar vörur sínar, en nú hefir allt slíkt umtal verið svo gersamlega kveðið niður, að þeir þora ekki að halda því fram, að kaupfélögin verði ekki að sæta sömu reglum um innflutning og aðrir aðiljar, nema þá helzt innan fjögra veggja.

Þá sagði þessi hv. þm., að ég hefði sagt, að góð samvinna hefði verið í gjaldeyrisnefndinni, og yfirleitt á milli þeirra aðilja, sem hér ættu hlut að máli. Þetta er vitanlega að nokkru leyti útúrsnúningur, eins og vænta mátti hjá þessum hv. þm. Mín orð voru þau, að gott samkomulag hefði verið um skiptingu gjaldeyris- og innflutningsleyfanna, sem úthlutað var fyrir fyrstu 4 mán. ársins.

Hv. þm. Vestm. sagði, að bankarnir og gjaldeyrisnefnd hefðu ekki gert neitt til þess að vernda lánstraust og erlend viðskiptasambönd annara en S. Í. S. Þetta er vitanlega ekki rétt. Ég veit ekki betur en að allt til þessa hafi bankarnir gert allt, sem þeir hafa getað, til þess að vernda lánstraust og sambönd manna erlendis. Þannig hafa þeir t. d. tekið á sig tryggingu á heilum skipsförmum til útgerðarinnar. Þetta hefir ekki verið venja áður. Og sé þetta ekki til þess að tryggja lánstraust viðkomandi manna, þá veit ég ekki, hvernig á að fara að tryggja það. Annars virðist mér þýðingarlítið að ræða öllu meira um þetta mál. Ágreiningurinn er ekki um það, að ekki beri að tryggja lánstraust og tiltrú hinna íslenzku kaupsýslumanna gagnvart erlendum lánardrottnum sem allra bezt, heldur er hann um leiðirnar. hvernig eigi að ná því marki.