21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í C-deild Alþingistíðinda. (2605)

68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti. Þegar ég kvaddi mér hljóðs, þá var ég að sönnu búinn að taka tvisvar sinnum til máls, en hafði þó talað mjög lítið. En eftir að ég hafði talað kom æðimargt fram í ræðu hæstv. fjmrh., sem þarf skýringar og leiðréttingar við. Ég veit þess vegna, að hæstv. forseti mun ekki telja það nema eðlilegt, að ég þurfi að koma þeim leiðréttingum að og að sú aths. mín verði nokkuð lengri heldur en ég hefi verið vanur að hafa eftir tvær ræður. En auðvitað mun ég reyna að gæta alls hófs í því.

Það, sem hæstv. fjmrh. hafði sérstaklega við mína ræðu að athuga, var viðvíkjandi því, að gjaldeyris- og innflutningslögunum hefði verið beitt rangsamlega eða ekki látin ganga jafnt yfir alla þá, sem þau lög snerta. Hann taldi þetta hina mestu fjarstæðu og fór mjög lítilsvirðandi orðum um minn málflutning um þetta atriði. En ég hafði í höndum sannanir og í minni vitund og minni fullkomna vissu um það, að þetta var ekki rétt hjá hæstv. fjmrh. Sérstaklega furðaði mig á því, að hann skyldi leyfa sér að fullyrða það, að menn væru orðnir á eitt sáttir um það, að þessi lög gengju réttlátlega og jafnt yfir. Í þessu sambandi vil ég minna hæstv. fjmrh. á það, sem hann sjálfur hefir verið búinn að gleyma, en þó er ekki umliðið fyrir löngu, og það er opinber yfirlýsing eins af nefndarmönnum innflutnings- og gjaldeyrisnefndar, og hefi ég fyrir mér hans umsögn um þetta, og vænti ég, að hæstv. forseti hafi ekki á móti því, að ég lesi hér upp nokkur orð til að hrekja það, að svo sé litið á af verzlunarstétt landsins, að þessi lög hafi gengið jafnt yfir. Það er merkilegt, að þessi meðlimur innflutnings- og gjaldeyrisnefndar byrjar á því að lýsa því yfir, að það sé á ábyrgð fjmrh., sem þessi nefnd starfar. Hann segir svo: „Gjaldeyrisnefndin starfar í aðalatriðum eftir reglum, sem fjmrh. hefir sett og móta framkvæmd starfsins. Í starfsreglum þessum er svo fyrir mælt, að innflutningsleyfi skuli gefin kaupfélögum og pöntunarfélögum eftir fjölda félagsmanna í samræmi við áætlaðan heildarinnflutning til landsins.“ En síðar kemur fram í þessari grein, að þessum félögum, pöntunarfélögum og kaupfélögum, er ætlað að hafa innflutning eftir höfðatölu, en sú tala er, skilst mér, reiknuð einkennilega út, því hann segir, þessi sami maður, sem ekki þarf að efa, að fari rétt með, eftir hvaða reglum nefndin starfi, að hér í Rvík sé félag, sem nefnist Pöntunarfélag verkamanna, sem telji sig hafa 900 þátttakendur. Samkv. útreikningi gjaldeyrisnefndar eigi félag þetta að fá sem svarar 9% af öllum innflutningi til bæjarins. Ef við bættust 10 félög hér í bænum af sömu tegund og hvert hefði svipaða tölu þátttakenda, eða samtals tæpan þriðjung bæjarbúa, myndi hver einasta matvöru-, byggingarefna-, vefnaðarvöru-, olíu-, benzín- og járnvöruverzlun bæjarins verða að loka. Þær fengju engan innflutning. Ég held, að þessar reglur sýni og sanni það, sem ég hefi áður haldið fram, að þessi lög séu þannig framkvæmd að þau gangi ákaflega ójafnt yfir. Nú er það svo, að þegar öllum innflutningi á að skipta svona, þá kemur fram önnur villa, sem þessi sami maður einnig bendir á. Eftir þessu ættu t. d. kaupfélög í sveit að hafa rétt til þess að fá vissan hluta af innflutningi útgerðarvara. Hvaða vit er nú í þessu? Kaupfélag uppi í sveit. þar sem engin útgerð er kannske í nánd, á að fá í sinn kvóta vissan hluta af innflutningi útgerðarvara.

Þessi sami maður segir, að eftir þessum reglum verði ekki annað séð en að hér sé um að ræða skipulagða útrýming kaupmannastéttarinnar í landinu. Og svo stendur þessi hæstv. ráðh. upp, sem hefir sett þessar reglur og er ófáanlegur til að breyta þeim, og segir, að það sé hin mesta fjarstæða, að þetta gangi ójafnt yfir, og ber meira að segja verzlunarstéttina fyrir því, að þetta sé rétt. En fulltrúi verzlunarstéttarinnar í þessari nefnd hefir gefið þessar upplýsingar, sem ég nú hefi lesið upp.

Það er líka eftirtektarvert, að í þessari grein kemur fram hjá þessum meðlimi gjaldeyrisnefndar, all annarsstaðar hafi það þótt dálítið athugunarvert, þegar reglur hafa verið settar um verzlun og innflutning, að einskorða hann við þá menn, sem áður hafa verzlað. Það var upphaflega mikið til gert hér. En hann segir, að verzlunin geti dálítið stirðnað á þessu og færzt í of fast og framfaralaust form, og þess vegna séu annarsstaðar veittar vissar prósentur til nýrra verzlana. Þetta er líka eðlilegt, vegna þess að ýmsar verzlanir hverfa úr sögunni af ýmsum ástæðum; þær geta orðið gjaldþrota og eigendur þeirra fallið frá o. s. frv. En hér á Íslandi er þetta svo, að þær einu nýju verzlanir, sem geta fengið innflutning, eru kaupfélögin. En allir, sem hafa aflað sér verzlunarmenntunar og vilja verða starfandi kaupsýslumenn, eru algerlega útilokaðir. Ég hefi tekið þetta upp sérstaklega vegna þess, að það kollvarpar gersamlega því, sem hæstv. fjmrh. sagði um það, að allt gengi jafnt yfir og að það mundi líka vera álit verzlunarstéttarinnar, eða a. m. k. forráðamanna hennar.

En það er alveg rétt, að kaupmenn og þeirra forráðamenn hafa látið það í ljós — og það er einmitt tekið fram í þessari grein —, að það, sem þeir hafa átt við kaupfélögin eða S. Í. S., hafi borið vott um meiri skilning og sanngirni heldur en það, sem þeir hafa átt við hæstv. fjmrh. Hann segir það líka í greininni, þessi meðlimur gjaldeyrisnefndar, að S. Í. S. hafi tekið vel og skynsamlega á í þessum málum, en að engu hafi orðið um þokað, þegar til fjmrh. kom. Eftir höfðatölunni hefði átt meira en að tvöfalda innflutning kaupfélaganna, þegar innflutningur er þó að minnka, en auðvitað vill S. Í. S. ekki taka á móti slíku, því það er eftir að selja þær vörur og innheimta verðið fyrir þær. Og það er ekki að búast við því, að menn, sem vanir eru slíkum forretningum, vilji taka það að sér að finna nýja kaupendur fyrir annað eins af vörum og þeir hafa áður flutt inn. En það lítur þannig út sem hæstv. fjmrh. hugsi bara út frá því, hvernig hægt sé að drepa verzlunarstétt landsins.

Ég skal nú ekki hafa fleiri orð um þetta sérstaka atriði, af því að þetta átti aðeins að vera aths. En í framhaldi af þessu og til andsvara því, sem hæstv. fjmrh. sagði um það. hvað þessi lög gengju jafnt yfir alla hlutaðeigendur og hvað verzlunarstéttin væri ásátt um það, þá vil ég bara skýra frá því, að þessi sami maður í innflutnings- og gjaldeyrisnefnd var mættur og stóð náttúrlega fyrir svörum á verzlunarþinginu, sem hér var haldið í vetur, og hann lýsti því þá yfir — sem hér var deiluatriði um daginn —, að S. Í. S. hefði sinn gjaldeyri frjálsan. Þetta var opinn fundur, sem bæði ég og fleiri vorum á, svo að ég ætla, að þetta hafi ekki verið neitt leyndarmál. Er þessi yfirlýsing í góðu samræmi við það, sem formaður gjaldeyrisnefndar sagði hér á fundi í sjútvn. í fyrra. Á þessum fundi kom hann með tvær till., þessi meðlimur innflutnings- og gjaldeyrisnefndar, og var sú fyrri þannig: „Að leyfi þau, sem þegar hafa verið gefin út af nefndinni og ekki hafa fengið afgreiðslu, verði látin ganga fyrir um yfirfærslu strax og kostur er.“ Þetta var gert út af því, að bankarnir höfðu ekki getað yfirfært það, sem leyfi var til fyrir, en þá lét gjaldeyrisnefnd þessi leyfi ganga úr gildi eftir vissan tíma og nýir menn fengu leyfi, en hinir sátu á hakanum, af því að bankarnir höfðu ekki getað yfirfært. — Önnur till. var þessi: „Að fundinn verði grundvöllur fyrir, að þau gjaldeyrisleyfi, sem gefin verða út eftir nýár, verði ekki háð því algerða öryggisleysi, sem nú er um gjaldeyrisleyfi. Að kaupmenn og aðrir innflytjendur fái sömu tryggingu til þess að standa í skilum með vörugreiðslur til útlanda eins og kaupfélagsstarfsemin í landinu, sem nú ræður yfir sínum eigin gjaldeyri og er því ekki háð greiðslustöðvun bankanna og þeirri hættu, sem af því leiðir.“ Mér þykir það djarft af hæstv. fjmrh. — hafandi þessar till. í höndum — að leyfa sér að svara ræðu minni með þeirri staðhæfingu, að ég hefði farið með rangt mál, er ég sagði, að lögunum um gjaldeyrisverzlun og innflutning hefði verið ranglega beitt, því hann hefir líka í höndum bréf, sem Verzlunarráð Íslands samkv. fyrirskipun verzlunarþingsins skrifaði stj. út af þessu máli. Í þessu bréfi stendur, að þinginu hafi ekki unnizt tími til þess að gera sundurliðaðar ályktanir um þessi mál, en í þess stað hafi svo hljóðandi áskorun verið samþ.: „Að verzlunarráði Íslands verði falið að leita samninga við ríkisstj. um, að gjaldeyris- og innflutningsnefnd verði nú þegar breytt þannig, að öll verzlunarstétt landsins geti borið traust til hennar.

Vér leggum áherzlu á, að nefndinni verði falið:

1. að sjá um, að innflutningurinn fari ekki fram úr gjaldgetunni, þannig að reynt verði af ýtrasta megni að ná greiðslujöfnuði við útlönd;

2. að réttlætis verði gætt við úthlutun innflutningsleyfa og gjaldeyrisleyfa eftir fastri „kvóta“-aðferð, og að báðar þær meginviðskiptastefnur, sem nú eru í landinu, séu jafnréttháar.“

Þetta var hæstv. ráðh. sent, en hann hefir ekki svarað því ennþá.

Ég held, að ég hafi nú sýnt fram á, að það var gersamlega rangt, sem hæstv. fjmrh. fór með, þegar hann sagði, að þessi lög gengju jafnt yfir. Ég get bætt því við, að síðan gjaldeyris- og innflutningshöftin voru sett, hefir innflutningur til landsins verið skorinn stórkostlega niður, eins og kunnugt er, en í blaði hæstv. fjmrh., Tímanum, frá 9. júlí síðastl., var skýrt frá því eftir síðasta sambandsfund, að sala innfluttra vara hjá Sambandinu hafi verið 6459000 kr. þ. á., en árið 1932 var sala þessara vara 3613000 kr.; m. ö. o, tvöfaldast salan á innfluttum vörum hjá sambandinu á sama tíma sem aðrar verzlanir landsins færa saman kvíarnar, vegna þess að þeim er neitað um innflutning. Þetta hygg ég, að sanni það, sem ég hefi látið skína í, að þessi höft hafa verið sett til þess að mismuna mönnum, og það er vitað, að þessi innflutningshöft voru í fyrstunni sett beinlínis fyrir S. Í. S., og þessari staðhæfingu minni til frekari sönnunar skal ég benda á það, að í þessari sömu skýrslu hefir forstjóri sambandsins lýst yfir því, að á þessu ári, sem flestir kaupmenn landsins töpuðu fé vegna gjaldeyrishaftanna, hafi Sambandið grætt 1,2 millj. kr. Þetta sýnir, að innflutningshöftin voru fyrst og fremst sett fyrir S. Í. S.

Í þessari skýrslu forstjóra S. Í. S. stendur ennfremur:

„…. Þá gat form, þess, að á síðastl. ári hefði Sambandið gengið í samband ensku kaupfélaganna í Manchester. Hefði skrifstofan í Leith átt nokkur skipti við það undanfarin ár, en hægt var að komast að betri kjörum með því að S. Í. S. gerðist deild í enska sambandinu.“

Þessi gjaldeyrishöft eru þá sett fyrir verzlunarfélag, sem er alls ekki íslenzkt í raun og veru. Fyrir það á að drepa verzlunarstétt landsins. Það þýðir ekki að gera tilraun til þess að dylja þetta, því að um þetta er skráð yfirlýsing frá forstjóra Sambandsins. Þess vegna falla staðhæfingar hæstv. fjmrh. dauðar og ómerkar, og út af því, að hæstv. ráðh. er að tala um nasablástur í mér og hv. þm. Vestm., vil ég segja honum það, að hann ætti heldur sjálfur að minnka sinn eiginn nasablástur. Finnst hæstv. ráðh. ekkert við það að athuga, að hann skuli gefa alranga skýrslu, og finnst honum ekkert óviðkunnanlegt að hafa ekki öðru að svara, þegar borin er fram skjalfest skýrsla, en því, að það sé nasablástur í þessum mönnum, sem krefjast leiðréttingar á mikilsverðu deilumáli, sem hann leyfir sér að fara með skrök um?

Ég vil enda þessi orð með því að lýsa sökum á hendur hæstv. fjmrh. fyrir framkomu hans í þessu máli, og ég vil einnig lýsa sökum á þá nefnd, sem hefir framkvæmt þessi lög bæði hlutdrægt og ranglátlega.

Get ég svo látið lokið máli mínu.