21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í C-deild Alþingistíðinda. (2621)
68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ástæðan til þess að ég sagði áðan, að um þetta mál væri farið að beita málþófi, er sú, að ég held, að ég megi segja, að við þessar 3 umr., sem búið er að hafa um málið, hafi verið haldnar ræður í a. m. k. 5–6 klst. utan við meginefni málsins, og að sumir, sem telja sig mest fylgjandi málinu, hafa talað 6 sinnum og aðrir 4–5 sinnum.
Ég ætla mér ekki að taka upp þann sið að spyrja hv. þm. G.-K. um það, hvenær mér þyki viðeigandi að svara því, sem til mín er beint, og læt orð hans mér sem vind um eyrun þjóta.
Hv. þm. G.-K. sagði, að dæmin, sem ég tók, væru ólík þeirri framkvæmd, sem átt hefði sér stað gagnvart S. Í. S. Þau eru náttúrlega ekki nákvæmlega hliðstæð, ég skal viðurkenna það. En ég hika ekki við að fullyrða, að þau dæmin eru mjög mörg til, þó að ég ekki nefndi þau nú. Og þó að ég kunni ekki nöfn á þeim síldarútvegsmönnum, sem hafa fengið að greiða vörur sínar með sínum erlenda gjaldeyri, þá stendur það alveg jafnfast, að ýmsir þeirra hafa notið þessa. Þeir hafa fengið að kaupa þannig vörur til sinnar útgerðar. Hv. þm. G-K. heldur því hér fram, að það séu einhver sérstök hlunnindi, sem með þessu frv. eigi að veita útvegsmönnum. Það viðurkenni ég ekki, vegna þess að enginn ágreiningur er um það, að þeir þurfi að fá þessar vörur og að það þarf að greiða þær, og meira að segja, að greiðsla á þessum vörum eigi að sitja í fyrirrúmi fyrir mjög mörgu öðru. Það, sem deilt erum hér, er því aðeins formið á greiðslunum fyrir þessar vörur, hvernig þeim verður bezt fyrir komið, til þess að sem hægast verði að hafa eftirlit með því, að ekki verði með undanbrögðum notaður til annara hluta að einhverju leyti sá gjaldeyrir, sem leyfður er til kaupa á útgerðarvörum. Og þó að hv. flm. frv. láti það í veðri vaka, að hér sé um að ræða mjög mikið hagsmunamál útgerðarinnar, — því að þeir vilja láta líta svo út, að þeir séu mjög skeleggir fyrir hennar hönd þá er hér alls ekki um slíkt hagsmununál að ræða. Því að enginn ágreiningur er um það, að fullnægja beri þörf útgerðarinnar í þessu efni, heldur aðeins um leiðina til þess.