04.04.1936
Neðri deild: 42. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í B-deild Alþingistíðinda. (266)

2. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

*Jón Sigurðsson:

Ég á hér eina brtt. ásamt hv. þm. A.-Húnv., sem gengur í þá átt, að 12. liður frv. falli niður. Ástæðan til þess, að við leggjum til, að þessi liður falli niður, er sú fyrst og fremst, að við teljum það ekki vera ástæðu til að taka þennan lið svona sérstaklega út úr vegna þess að þeim, sem eiga að framkvæma hann, kemur saman um, að þetta sé lítt framkvæmanlegt, og í öðru lagi kemur þetta tilfinnanlega niður á búfjárræktinni og þeim umbótum, sem þar er verið að vinna, og má gera ráð fyrir, að ef þetta nær fram að ganga, þá leiði af því talsverða kyrrstöðu eða jafnvel fullkominn afturkipp í þessum efnum. — Ég sé að vísu, að það er komin fram brtt. um að hækka þennan lið, en lækka 13. liðinn að sama skapi, og get ég fyrir mitt leyti greitt atkv. með því sem nokkurskonar varatill. En ég vil taka það fram, að eins og nú er komið þessum málum, þá eru horfurnar þannig, að það eru ekki ýkjamiklar líkur til þess, að útgjöldin við búfjárræktina vaxi verulega, því mér skilst, að ekki þurfi að búast við því, að búfjárræktarfélögunum fjölgi verulega úr þessu vegna strjálbýlisins, en á hinn bóginn er óviðkunnanlegt að þurfa að hringla með þetta frá ári til árs. Ég tel þess vegna eðlilegt, að þessi liður falli algerlega niður.

Um aðra liði frv. ætla ég ekki að ræða, en aðeins minnast örfáum orðum á brtt. hv. þm. V.-Húnv. á þskj. 277, þar sem hann leggur til, að á árinu 1937 greiði ríkissjóður ekki hærra framlag til sýsluvegasjóða en sem svarar 4/5 á móti framlagi héraðanna, sbr. l. um sýsluvegasjóði frá 1933. Ég vil aðeins í þessu sambandi upplýsa það, að fyrir mér, og ég býst við ýmsum fleirum, sem studdu að því, að þetta atriði var tekið upp, vakti það alls ekki, að ekki skyldi lagt neitt á móti, þegar komið væri yfir 5‰. Að vísu hefir það orðazt þannig og ég býst við, að það verði skilið þannig, og þess vegna tel ég, að brtt. hv. þm. sé til bóta frá því, sem nú er. Það er ranglátt og í alla staði óeðlilegt, að ef t. d. sýslufélag treystir sér til þess að leggja á sig 5‰ gjald, og svo býðst hreppur til að leggja á móti, af því að honum er það nauðsynja- og áhugamál, þá sé ekki von til, að þar komi nokkuð á móti úr ríkissjóði. Það er ranglátt, eins og nú standa sakir, og þess vegna mun ég ákveðið fylgja þessari brtt. hv. þm. V.-Húnv.