25.03.1936
Neðri deild: 33. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í C-deild Alþingistíðinda. (2680)
86. mál, Ræktunarsjóður Íslands
Flm. (Sigurður Einarsson):
Í 1. nr. 105 frá 3. maí 1935 er svo að sjá, að felld hafi verið úr gildi heimild, sem var í hinum eldri l. um ræktunarsjóð Íslands, um að lán til íbúðarhúsa, peningshúsa og hlöðubygginga mættu vera afborgunarlaus fyrstu fjögur árin. Þessi upptalning er í gr., sem skipt var í 4 stafliði, en með l. frá 1935 er bætt inn í hana lánum til rafmagnsstöðva. Virðist þá klausan, sem á eftir upptalningunni fer, hafa verið tekin óbreytt upp úr eldri 1. Verður gr. þar af leiðandi ekki skilin annan veg, ef ekki er annarsstaðar heimild í þessu efni, en að það hafi verið vilji löggjafans að svipta þessi lán, sem nú eru undir stafl. e., þeim hlunnindum, sem þau höfðu eftir eldri lögum.
Ég vildi leyfa mér að fara þess á leit, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. landbn. til athugunar. Það getur verið, að svo sé hér um hnútana búið, að þetta komi ekki að sök, en ég fæ þó ekki betur séð en að betur færi á, að þessi breyt. sé gerð á lögunum.