03.04.1936
Neðri deild: 41. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í C-deild Alþingistíðinda. (2694)
94. mál, einkasala á bifreiðum, rafvélum, rafáhöldum o. fl.
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það hefir orðið að samkomulagi, að ég tali á undan hv. 1. flm., þar sem hann hefir talað tvisvar og á aðeins eftir eina ræðu fyrir utan aths., og er þá ætlun mín að koma með þær upplýsingar viðvíkjandi verðlagi einkasölunnar, sem ég ekki taldi mig geta gert nægilega í gær. — Þau einu atriði, sem ég taldi mig þá ekki geta gert nægileg skil, voru tvö dæmi, sem hv. þm. V.-Sk. tók og áttu að sýna okur það, sem væri á þessari vöru síðan einkasalan tók við. Annað dæmið var um mótor, sem einkasalan seldi á 720 kr., en hliðstæðir mótorar hefðu áður verið seldir á 450 kr., eftir því, sem hv. þm. gaf upp. En honum láðist að getu þess, að frá einkasölunni kostaði hann ekki 720 kr., heldur 575 kr., en sá, sem hafði gert sig að millilið, tók í sinn vasa mismuninn á 575 kr. og 720 kr. Þetta er vitanlega ekki þýðingarlaust. En það var ekki aðeins að þessu eina leyti, sem þetta dæmi var óheppilegt. Það var svo, að sá, sem bað um að panta mótorinn, bað um hann frá sérstöku firma í Svíþjóð og vildi ekki annað en Elektro Mecano; þetta var látið eftir fyrir þrábeiðni mannsins, en þennan sama mótor hefði verið hægt að fá a. m. k. 10% ódýrari í öðru landi. Það er því ekki svo, eins og hv. þm. V.-Sk. vildi gefa í skyn, að þessu sé hagað eftir geðþótta einkasölunnar, heldur var það beinlínis gert til þess að þóknast viðskiptamanninum, að kaupa mótorinn þar, sem hann var dýrari. Þetta er einkennilegt, og hvaða ástæðu þessi maður hefir haft til þess að leggja svo ríka áherzlu á, að mótorinn væri keyptur í þessum stað, veit ég ekki, en ég hefi heyrt talað um, að hann hafi haft umboð fyrir þetta firma áður en einkasalan tók til starfa.
Hv. þm. V.-Sk. var að skjóta fram þeirri spurningu, hvað hefði orðið af þeim mismun, sem væri á verði einkasölunnar og á verðinu, sem hefði verið áður. Ég veit ekki, hvernig stendur t. d. á því í þessu tilfelli, sem við vorum nú að tala um, að þessi maður, sem áður hafði verið umboðsmaður fyrir þetta firma, leggur svo ríka áherzlu á, að mótorinn sé einmitt keyptur þaðan, þótt hægt sé að fá hann 10% ódýrari annarsstaðar. Það má vitanlega láta sér detta ýmislegt í hug, eftir að þetta er upplýst. En svo kastar tólfunum, þegar á að fara að sanna það, að viðskiptin við einkasöluna séu óhagstæð, að þá skuli þetta dæmi vera valið til þess að ráðast á einkasöluna fyrir að selja dýrt, þegar ekki mátti kaupa mótorinn í öðrum stað. Það mætti náttúrlega liggja einkasölunni á hálsi fyrir að hafa látið undan óskum þessa manns, og þótt einkasalan hafi viljað gera það til þess að halda friði, þá má segja, að það sé of mikið til friðarins unnið. Það lítur einkennilega út að heimta sérstaklega, að mótorinn sé keyptur frá þessu ákveðna firma, en má kannske segja, að maður inn hafi haft góða trú á því, en hitt lítur þó einkennilegar út, að þessi sami maður skuli láta ráðast á einkasöluna fyrir það, að hún selji of dýrt, þegar kaupin voru í þessu tilfelli bundin við ákveðið firma og ekki hægt að nota þá aðferð, sem venjuleg er í viðskiptum, að taka bezta tilboði.
Þá var annað atriði, sem hv. þm. lagði mikla áherzlu á, og það var verð á númerakössum. Hann sagði, að verðið á þessum númerakössum hefði verið 42 kr. hjá einkasölunni, en áður en hún tók til starfa hefðu þeir kostað 18 kr. Ég held, að þetta gefi líka ágæta upplýsingu um það, hve ráðvandlega hv. þm. fer með þessi mál, eða hvernig þeir, sem gera hann út, búa í hendurnar á honum. Einkasalan kannast alls ekki við að hafa nokkurntíma selt númerakassa á 42 kr., en það er tekið fram í þeim upplýsingum, sem einkasalan gefur, að misskilningurinn geti legið í því, að hv. þm. eigi við númerakassa með svokallaðri rafmagnsafstillingu. Slíka númerakassa hefir einkasalan selt fyrir 28 kr., en hér er ekki um þessa kassa að ræða, og venjulegu númerakassa með 6–7 númerum hefir raftækjasalan selt á 17 kr. M. ö. o. er þessi upphæð lægri en sú upphæð, sem hv. þm. segir, að þessi vörutegund hafi verið seld fyrir áður en einkasalan tók til starfa, svo að þessi samanburður, sem hv. þm. byggir ádeilu sína á, er alveg út í hött. Annaðhvort er þetta uppspuni hjá hv. þm. eða hér er um að ræða allt aðra vöru heldur en hv. þm. hyggur í fáfræði sinni, því að eftir upplýsingum frá raftækjaeinkasölunni er númerakassi með rafmagnsafstillingu allt annað en venjulegur númerakassi.
Þetta eru þau tvö dæmi, sem hv. þm. lagði mest upp úr í gær, og ætla ég, að hann hafi ekki mikla stoð í þessum samanburði sínum eftir þessar upplýsingar, sem ég hefi fengið frá einkasölunni. En ég ætla ekki að láta þetta nægja. Út af þessum árásum hv. þm. á raftækjaeinkasöluna ætla ég að gefa honum upplýsingar, sem ég hefi fengið frá verzluninni um verð fyrr og nú, til þess að hv. þm. geti haft eitthvað til þess að glíma við í þessari einu ræðu, sem hann á eftir. og aths., sem hann kann ef til vill að bæta þar við.
Það er eitt, sem gengur eins og rauður þráður í gegnum allan þennan verðsamanburð hv. þm., og það er það, að hann hefir borið heildsöluverð raftækjaeinkasölunnar saman við innkaupsverð heildsöluverzlana, sem fyrir voru, áður en einkasalan tók til starfa, og hv. þm. hefir ekki borið saman við heildsöluverð þessara heildsala, heldur innkaupsverð þeirra. Það er þokkaleg aðferð, sem hv. þm. leyfir sér að nota í þessum aðfinnslum sínum til þess að reyna að færa sönnur á sitt mál.
Ég var satt að segja hissa á því, þegar hv. þm. var að deila á einkasöluna, að hann skyldi ekki koma fram með þann samanburð, sem hann gerði síðastl. haust á verðlagi einkasölunnar og því, sem hann kallaði innkaupsverð, sem er innkaupsverð beint frá verksmiðjunni. Er þetta prentað í Morgunbl. 11. des. 1935, þegar hv. þm. var að blása sig út í þessari hv. deild. Nú bregður svo undarlega við, að hv. þm. minnist ekki á þennan samanburð; hann hefir annað fyrir framan sig núna. Nú hefir einkasalan tekið þessi plögg til athugunar, og eins og ég hefi þegar tekið fram, er aðalgallinn á þessum samanburði sá, að hann er falskur, þannig að hv. þm. ber saman tvö ósambærileg verð. Niðurstaðan á þessum samanburði varð á nokkuð annan veg hjá einkasölunni heldur en hjá hv. þm. V.-Sk. Einkasalan hefir tjáð mér, að það, sem hún beri saman við í þessu efni, sé það heildsöluverð, sem henni er kunnugt um, að var áður á þessari vöru, og er það sérlega handhægt fyrir hana að bera saman við það verð, sem þau fyrirtæki, sem áður störfuðu hér í þessari grein, sögðu, að væri heildsöluverð, þegar einkasalan tók við þeim vörubirgðum, sem þau höfðu áður en hún tók til starfa. Einkasalan tók þessar vörubirgðir í umboðssölu, og þessi fyrirtæki tóku það fram, hvaða verð þau þyrftu að fá fyrir vörurnar til þess að þau töpuðu ekki, miðað við það verð, sem þau áður fengu. Ég skal taka það fram, að einkasalan hefir getið þær upplýsingar, að í þessu efni sé ekki stuðzt við verð hinnar gömlu, margumtöluðu Raftækjaverzlunar Íslands, heldur er stuðzt við það heildsöluverð, sem gefið hefir verið upp frá Paul Smith, sem átti aðalvörubirgðirnar. Ég skal þá, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp þennan samanburð einkasölunnar. Eins og ég hefi þegar tekið fram, er samanburður einkasölunnar miðaður við það heildsöluverð, sem áður var á þessari vöru hjá þeim verzlunum, sem verzluðu með hana áður en einkasalan tók til starfa.
Heildsölu-
Heildsölu-
verð hjá
verð áður
einkas.
Rör 5/8 lokuð ............
kr. 32.00
kr. 29.00
— 5/8 skrúfuð
— 42.00
— 40.00
Vír 1,5 mm. . . . . .
— 7.00
— 6.50
— & 6.80
Lampaleiðsla ............
— 18.00
— 16.00
Straujárn, brúttó
— 8.00
— 8.V0
— brúttó ................
— 10.40
— 10.40
— brúttó . . . . . . .
— 11.20
— 11.20
Hitasnúra, brúttó
— 2.00
— 2.00
Tvítengi .................
— 45.00
— 45.00
Tengiklær, lokaðar
— 30.00
— 25.00
Blýstrengur,ber2X 1,5 mm.
— 37,00
— 35.00
— yfirspunninn ....
— 44.00
— 40.00
Vartappar D 2 I 6
— 12.00
— 9.00
— II 6
— 12.00
— 9.00
— 20 ....................
— 22.00
— 15.00
— 25 . . . . . . . . . . . . . .
— 25.00
— 18.00
— 35 ....................
— 43.00
— 43.00
— 60 . . . . . . . . . . . . . .
— 70,00
—45.00
Gúmmíleiðsla 2 X 1 . .
— 34.00
— 25.00
Rofar utan á ............
— 100.00
—80.000
Batterí, flöt ............
— 37.00
— 32.00
— sívöl, stór .. .. ... .... .
— 82.00
— 82.00
Ein tegundin af þessum svokölluðu „vartöppum“, sem hv. þm. vitnaði oftast í og taldi hafa hækkað um 300%, hefir lækkað úr 70 kr. niður í 45 kr., eins og skýrslan ber með sér. Af þessu er hægt að sjá, hvernig staðhæfingar hv. þm. eru í þessu efni. — Þessar vörutegundir, sem ég las upp, voru þær helztu, sem hv. þm. minntist á í sínum samanburði og hélt fram, að hefðu hækkað allt upp í 300%, en þær hafa samkv. þessari skýrslu annaðhvort staðið í stað, miðað við núv. verð einkasölunnar, eða lækkað, og í sumum tilfellum að mjög miklu leyti, og í þessum samanburði er, eins og ég tók fram áðan, stuðzt m. e. við það heildsöluverð, sem firmað Paul Smith gaf upp, að það þyrfti að fá til þess að sleppa skaðlaust, miðað við fyrri viðskipti sín. Það þýðir ekkert fyrir hv. þm. að bera verð einkasölunnar saman við innkaupsverð heildsölufirmanna gömlu, því að það hefir ekkert gildi.
Þá hefir mér verið látin í té skrá, sem ég vil ekki þreyta hv. þingd. á að lesa, því að hún er verðsamanburður í framhaldi af því, sem ég las upp áðan frá einkasölunni, en ég skal taka það fram, að ég hefi ekki rekið augun í neitt, sem hefir hækkað; þvert á móti hefir allt annaðhvort staðið í stað eða lækkað, og sumt mjög mikið. — Ég þarf náttúrlega ekki að taka það fram, að meðan einkasalan var að selja þær vörur, sem hún tók frá firmanu Paul Smith og fleiri firmum, þá varð hún vitanlega að selja þær vörur með því verði, sem svaraði til þess, að þessi firmu, sem afhentu einkasölunni vörubirgðir sínar, gætu fengið heildsöluverð úr umboðssölunni.
Ætla ég svo, að þessar upplýsingar, sem ég hefi gefið, nægi til þess að sú n., sem fær málið til athugunar, geti kynnt sér þetta áfram til frekari hlítar.
Ég vil svo að endingu taka það fram, að þessar upplýsingar, sem ég hefi gefið í sambandi við árásir hv. þm. V.-Sk. á raftækjaeinkasöluna, styðja mjög þá skoðun, sem ég lét uppi í gær, að ástæðan fyrir því, að hv. þm. flytur þetta frv., er, fyrir utan það, að hann hefir gaman af að láta bera á sér, vitanlega ekkert annað en óánægja þeirra manna fyrst og fremst, sem höfðu mikilla hagsmuna að gæta í sambandi við stofnun þessa fyrirtækis, því að vitanlega er ómögulegt að koma í veg fyrir það, þegar slík fyrirtæki eru stofnuð, að einhverjir missi einhverja möguleika til þess að skapa sér verzlunarágóða.
Vil ég svo minnast á eitt atriði enn, sem vert er að tala um. Hv. þm. hefir talað mikið um það, hvað bæði ráðuneytið, sem hér á hlut að máli, og þetta fyrirtæki hefðu sýnt lítinn vilja á að vinna í friði við þá, sem við þetta fyrirtæki skipta. Í gær skýrði ég frá þeirri tilraun, sem ég hefi gert í þessu skyni, en ég hefi fengið upplýsingar frá raftækjaeinkasölunni um það, að skömmu eftir að hún tók til starfa hafi öllum rafvirkjum landsins verið skrifað bréf, þar sem þess var óskað, að þeir létu í ljós skoðun á því, hvaða vörur þyrfti að kaupa o. fl., sem máli skipti í þessu sambandi; en þessu bréfi, sem einkasalan sendi rafvirkjunum til þess að leita samstarfs við þá, var aldrei svarað.