28.03.1936
Neðri deild: 36. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í C-deild Alþingistíðinda. (2707)

95. mál, sveitarstjórnarlög

*Flm. (Ólafur Thors):

Ég hefi ásamt hv. þm. Mýr. leyft mér að flytja þetta frv., vegna þess að við atkvgr. um svipaða breyt., sem borin var fram í sambandi við útsvarslögin, þá gat ég um það, að ég mundi greiða atkv. á móti þeirri till. formsins vegna, en hún hneig að mestu leyti í sömu átt og þetta frv. — En ég gat þess þá einnig, að ég mundi eiga hlut að því að ná efnislega að mestu leyti því sama og í till. fólst með flutningi þessa frv. En frv. fer fram á, eins og það ber með sér, að þegar á að jafna niður sýslusjóðsgjaldinu, á áður að draga frá skattmati fasteignanna skattmat sumarbústaða, sem þeir menn eiga og nota, sem eru búsettir utan hreppsins ef þeir eru ekki útsvarsskyldir í hlutaðeigandi hreppi samkv. útsvarslögum. Mér finnst ekki hægt að mæla gegn því, að þetta er sanngjörn till.

Ég hygg, að þeir menn, sem hér eiga hlut að máli, geti ekki með neinum rétti haldið því fram, að gerð sé tilraun til þess að níðast á þeim, þó að slíkt ákvæði sé lögfest sem hér er farið fram á. Enda er hér ekki um að ræða verulega stóra fjárhæð, sem geti skipt verulega fjárhagslega máli fyrir hlutaðeigandi húseigendur, en það getur haft nokkra þýðingu fyrir hreppsbúa, þar sem þeir gætu, ef slík ákvæði væru ekki lögfest, lent í hækkuðum skatti vegna þessara húseigenda. Að því leyti get ég leyft mér að vísa til þeirra umr., sem fóru fram í sambandi við þá till., sem ég gat um áðan, og þá einkum til ræðu, sem hv. þm. V.-Sk. flutti, enda verð ég að viðurkenna það, að það var vegna þeirrar bendingar, sem kom frá honum í þeirri ræðu, að ég hné að því að greiða atkv. móti þeirri till. eins og hún lá fyrir og að því ráði að flytja þetta frv. En þar sem svo skammt er liðið síðan þær umr. fóru fram, tel ég ástæðulaust að rifja þær upp, og læt þess vegna þessa stuttu framsögu nægja.

Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og allshn.