28.03.1936
Neðri deild: 36. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í C-deild Alþingistíðinda. (2714)
95. mál, sveitarstjórnarlög
*Jörundur Brynjólfsson:
Ég hefi ekki rétt nema til aths. og skal ekki misnota það. Enda þótt bæði ég og hv. 2. þm. N.-M. höfum komið með glögg dæmi, skilur hv. þm. V.-Sk. ekki frekar en áður nokkurn skapaðan hlut í þessu. Mér skilst yfir höfuð ekki þýða að tala við hv. þm. með rökum. Hann veður elginn í sífellu og læzt ekki taka sönsum. Hv. þm. ætlast til, að ég komi að fótskör hans til þess að öðlast skilning. Nei, ég öfunda ekki hv. þm. Mýr., sem því miður er kominn allt of nálægt þessari fótskör. Hann þurfti ekki að fræða mig um, hvernig væri háttað niðurjöfnun í sveitum. — Hv. þm. V.-Sk. vildi færa ummæli mín úr lagi til þess að sýna þekkingu sína á þessum málum.
Hvað viðvíkur skilningi mínum á þessum málum yfirleitt, er mér nokkuð sama, hvað þessi hv. þm. segir um hann. Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta frekar, en mun við 2. umr. leggja fram brtt. og get þá vikið frekar að málinu.