14.04.1936
Neðri deild: 48. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í C-deild Alþingistíðinda. (2733)

98. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta

*Pétur Ottesen:

Ég skal aðeins benda á það út af því, að hv. þm. Ísaf. minntist á þáltill. þá, sem samþ. var á þingi 1934, að ég ætla, að ekki komi þar fram beint sú hugsun, að slíka löggjöf ætti að undirbúa á þeim grundvelli, að þar yrði sett skyldutrygging. Ræð ég það af því, að á þingi 1935 voru sett lög um tryggingu opinna vélbáta, og voru þau ekki byggð upp á þeim grundvelli að koma á skyldutryggingu, heldur var fiskiþinginu falið að gangast fyrir að koma þeim upp með frjálsum samtökum. Svo sá grundvöllur, sem hér er byggt á, er annar en sá, sem Alþ. hefir áður valið til hliðstæðrar starfsemi, eins og fram kemur í lögum um samtryggingu og í lögunum frá 1935 um opnu vélbáta.

Við það hefði enginn haft að athuga, þótt stofnað hefði verið til óskuldbundinnar samtryggingar. Að ég ber fram þessa till. mína, er einmitt í sambandi við það, að nú er ákveðin skyldutrygging, og þess vegna æski ég þess f. h. umbjóðenda minna, að þetta frv. sé betur athugað en orðið er. — Ég vildi láta þetta koma skýrt fram vegna þeirrar tilvitnunar, sem hv. þm. Ísaf. kom með til þál. frá 1934.