04.04.1936
Neðri deild: 42. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 362 í B-deild Alþingistíðinda. (274)
2. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Hv. þm. V.-Húnv. spurði mig, hvort mér fyndist eðlilegt að afgreiða málið eins og frv. gerir ráð fyrir. Það má náttúrlega deila um það, hvernig eðlilegast sé að láta koma fram lækkun á þessu framlagi, en mér finnst liggja sterk rök fyrir því, að ef framlagið er lækkað á annað borð, þá sé það fyrst og fremst lækkað við þá, sem hafa fengið mest, þótt þeir leggi mikið á sig heima fyrir. Þegar um það er að ræða, að ná einhverju ákveðnu marki í niðurfærslu þessa framlags, þá finnst mér sú leið eðlilegust, að jafnt sé tekið af öllum og meira af þeim, sem meira hafa fengið; ég er því fylgjandi þeirri leið, sem frv. gerir ráð fyrir.
Hv. þm. spurði, hvernig lögin um framlagið yrðu framkvæmd, og verð ég að taka það fram, eins og áður, að þetta heyrir ekki undir mig, og ég tel mér ekki fært að gefa neinar upplýsingar um það, hvernig þessi lög verða framkvæmd, en minn skilningur á 15. lið frv. er sá sami og ég gat um áðan, og ég held, að það verði ekki villzt um, að sá skilningur er réttur, eins og við erum sammála um.