02.05.1936
Neðri deild: 61. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í C-deild Alþingistíðinda. (2766)
125. mál, framfærslulög
*Frsm. 1. minni hl. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Ég held, að það sé ekki allskostar rétt hjá hv. 3. þm. Reykv., að efni þessa frv. hafi verið ágreiningsmál milli Alþfl. annarsvegar og hinna þingflokkanna hinsvegar. Það getur verið, að svo hafi verið um einstaka atriði, en að æðimargir úr öðrum flokkum hafi verið frv. andvígir, er ekki rétt.
En ég skal geta þess út af athugun á þessu máli, að fulltrúar frá mæðrastyrktarn. Rvíkur hafa skýrt mér frá því, að þeir hefðu talað um þetta mál við formenn allra stærstu stjórnmálaflokkanna á þingi og fengið góðar undirtektir hjá þeim yfirleitt. Þar af leiðandi er þetta mál ekki eins nýtt fyrir þingheimi eins og lítur út fyrir nú, því að fulltrúar frá mæðrastyrktarnefnd Rvíkur hafa rætt það nákvæmlega við einn eða fleiri úr hverjum stjórnmálaflokki, og eftir því, sem þeir segja mér, fengið góðar undirtektir. Það væri þess vegna full ástæða fyrir okkur flm. þessa frv., eftir þeim upplýsingum, sem við höfum fengið, að ætla, að það yrði ekki næsta mikill ágreiningur um höfuðatriði þessa frv.