02.05.1936
Neðri deild: 61. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 455 í C-deild Alþingistíðinda. (2769)

125. mál, framfærslulög

Thor Thors:

Mér er kunnugt um það, að þær konur, sem stóðu að þessu máli, komu á fund allshn. Nd. í fyrra, og n. var sammála um að vísa á bug þeirra málaleitun. — Mér er og kunnugt um það, að hv. 6. landsk., sem hafði samning þess frv. til framfærslulaga, sem nú er orðið að lögum, með höndum, er því persónulega mótfallinn, að þær breyt., sem þetta frv. gerir ráð fyrir, nái fram að ganga. Svo að það er ekki hægt að taka þetta sem flokksmál Alþfl. gegn öllum öðrum flokkum í þinginu.

Ég veit ekki, hvað fram hefir farið milli form. Sjálfstfl. og þeirra kvenna, sem standa að frv., en hann hefir tjáð mér, að hann taki ekki afstöðu til þessa máls fyrr en fulltrúar Sjálfstfl. í allshn. séu búnir að segja sitt álit um málið. Og ég vil segja fyrir mitt leyti, að eftir þá íhugun, sem enn hefir verið hægt að koma við í þessu máli, er ég helzt alveg á móti málinu, en við bíðum eftir umsögn þess aðilja, sem hlýtur að vera þessu máli kunnugur, en það er framfærslunefnd Reykjavíkur.

Ég vil svo taka undir það, sem hv. þm. Borgf. sagði, að það sé réttast að bíða með afgreiðslu þessa máls þangað til meiri hl. allshn. hefir fengið þá umsögn, sem hann bíður eftir.