25.02.1936
Efri deild: 8. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í C-deild Alþingistíðinda. (2801)
30. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga
Þorsteinn Þorsteinsson:
Ég þarf ekki að hafa langan formála. Hv. 1. þm. Reykv. minntist n. lofsamlega með hlýjum húskveðjuorðum, eins og hans köllun var. Hinsvegar fannst mér hann ekki fara sérstaklega lofsamlegum orðum um föður n., hæstv. atvmrh., sem var þó að þakka honum lof sér til handa. Annars skildist mér á nm. sjálfum, að þeir muni ekki telja n. framliðna. Var helzt að heyra, sem þeir vildu, að hún lifði lengi enn, a. m. k. til annars þings. Ég sé ekkert við það að athuga fyrir mitt leyti. Þeir gætu sjálfsagt komið fram ýmsum þarfaverkum fyrir þjóðina.
Ég ætla mér ekki að fara að ræða um frv. í heild sinni, aðeins að minnast lítillega á III. kafla þess. Ég hélt, að það ætti að vera verk n. að létta af skattabyrði bæjar- og sýslusjóða. En sú von mín hefir brugðizt. Því höfum við, hv. þm. N.-Ísf. og ég, komið fram með frv. í því efni.
Í 15. gr. frv. finnst mér ekki nægilega skilgreint, hvaða kauptún við er átt. Nú fylgir víða kauptúnunum meira eða minna af jörðum. Á ýmsum stöðum er það kauptúnið, ásamt örfáum jörðum, sem myndar hreppinn. Á nokkrum stöðum eru viðlíka margir, sem búa á jörðum og í kauptúnum, og sumstaðar jafnvel mestur hluti hreppsbúa, er á jörðum búa, þótt kauptún sé í hreppnum. Ég held, að heppilegra hefði verið að leggja vörugjald á allar þær vörur, sem flytjast til kauptúnanna, jafnvel þótt þau séu ekki aðalefniviðurinn í hreppunum.
Þá er það um vörugjaldið að segja, að þar, sem uppsveitir eru miklar frá kauptúnum, koma vörugjöldin að miklu leyti upp í útsvörin, svo að þar þarf þá að taka minni útsvör en í öðrum kauptúnum. Ég tel þetta misrétti og skýt því til n. þeirrar, er kemur til með að fjalla um þetta mál hér í d., að hún miði hámarkið við íbúatölu, og yrði þá væntanlega afgangur, sem verða kynni, látinn ganga í annan jöfnunarsjóð, sem svo yrði jafnað niður á sveitirnar. Ef notuð er heimildin um hækkun vörugjalds allt að 100%, þá verða það ekki litlar tekjur í sumum kauptúnum.
Þá er annað atriði, sem þarf að lagfæra, viðvíkjandi vörum, sem sendar eru sjóveg milli staða innanlands. Ef t. d. er sendur hlutur frá Borgarnesi til Rvíkur til viðgerðar, þá þarf 4 sinnum að greiða af honum vörugjald, þegar hann fer frá Borgarnesi, þegar hann kemur til Rvíkur, þegar hann fer frá Rvík og loks þegar hann kemur til Borgarness aftur. Þetta getur orðið allhá upphæð samtals, sérstaklega ef hluturinn er þungur og lendir í 5. flokki.
Annars orðlengi ég þetta ekki frekar, en vil taka undir við hæstv. atvmrh. um það, að málinu verði vísað til allshn. fremur en fjhn.