24.04.1936
Efri deild: 55. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í C-deild Alþingistíðinda. (2809)
30. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga
Frsm. 1. minni hl. (Magnús Guðmundsson):
Maður skyldi ætla, að það yrði einhver, sem tæki til máls, þar sem sú n., sem hefir með málið farið, er skipuð 5 mönnum og er fjórklofin. Ég vil a. m. k. ekki láta málið fara svo áfram, að enginn taki til máls, og ég vil þess vegna segja nokkur orð um mína afstöðu til málsins.
Þetta mál, sem hér liggur fyrir, er undirbúið af mþn., eins og kunnugt er, og í þeirri n. var sæmilegt samkomulag, og kom hún sér saman um frv., sem allir nm. voru að vísu ekki ánægðir með, en þó var það þannig, að því er mér skildist, að allir nm. sættu sig við frv. eins og það var, þó að ýmsir kysu það á annan veg. Það er annars auðvitað mál, að það er erfitt að setja l. um tekjur bæjar- og sveitarfélaga, þannig, að allir séu sammála, enda hygg ég, að það verði aldrei gert. Þetta var n. alveg ljóst, og hún reyndi þess vegna að sveigja saman skoðanir þannig, að allir gætu nokkurnveginn við unað. — Þetta frv., sem hér var lagt fyrir í þingbyrjun, var, eins og ég tók fram, árangurinn af starfi n., en hæstv. atvmrh. vildi ekki flytja það, og þess vegna varð það að ráði, að við tveir, sem í n. áttum sæti og líka eigum sæti í þessari hv. d., flyttum það. Frv. var nokkuð rætt hér við 1. umr., og síðan var því vísað til allshn. Í n. hefir gengið erfiðlega með málið. Það hefir verið beðið lengi eftir afstöðu ýmsra nm. til þess, og að lokum sá ég mér ekki annað fært, til þess að koma hreyfingu á málið, en að setja fram brtt. þær, sem ég vildi reyna að koma að, og eru það brtt., sem ég hefi ástæðu til þess að ætla, að allir nm. geti fellt sig við, eða a. m. k. 4 af þeim. Ég skal taka það fram um þessar brtt., að þær eru ekki stór breyt. á frv.
Aðalbreyt. er sú, að það sé aðeins heimilt að leggja á fasteignaskatt í kaupstöðum og hreppum. En eftir frv. var það skylt í kaupstöðum og kauptúnum, sem eru sérstakt hreppsfélag, en aðeins heimilt í sveitum. Eftir minni brtt. er stungið upp á því, að það sé aðeins heimilað alstaðar. Ég varð ekki var við, að neinn í n. hefði neitt við þetta atriði að athuga út af fyrir sig. — Þá hefi ég gert till. um breyt. við 18. gr., um það, að fella burtu vörugjald af allri framleiðsluvöru landsmanna, og hefi ég gert það af því, að það er leiðinlegt að þurfa að skattleggja eigin framleiðslu, þegar vitað er, að hún gengur ákaflega illa, en þó er þar við að athuga, að allir skattar koma að síðustu niður á framleiðslunni, svo að þetta er meir stríð um orð heldur en veruleika. Afleiðingin af þessu er sú, að ég hefi ekki séð annað fært en að hækka vörugjaldið úr 50 í 65 aura á þeim vörum, sem annars verða gjaldskyldar eftir III. kafla frv. Þetta eru þær brtt., sem ég ber fram á þskj. 350. En ég verð að fara nokkrum orðum um málið að öðru leyti.
Ég vil fyrst benda á, að þótt svo sé sagt, að það sé ótakmarkaður álöguréttur bæjar- og sveitarfélaga á gjaldendur sína með útsvari, þá er það meir í orði en á borði. Þegar útsvörin eru orðin svo há, að gjaldendurnir geta ekki undir þeim risið, þá vaknar alda um það að hætta að greiða allt útsvarið, þótt hlutaðeigandi gæti greitt eitthvað. Þess vegna virtist n. ekki um neitt annað að ræða en að reyna að flytja eitthvað af þessum gjöldum yfir á aðra gjaldstofna, því að n. hafði ekki neina heimild til þess að koma með till. um að nema burtu einhverja útgjaldaliði bæjar- og sveitarfélaga og hafði þess vegna engin önnur ráð en að flytja þá til þannig, að þeir væru teknir af öðrum tekjustofnum. Það er ekkert annað en svikamylla, að leggja stöðugt aukin gjöld á gjaldendur bæjar- og sveitarfélaga, segja þeim að taka þau með útsvörum, sem vitanlega er ómögulegt að ná inn, því að fjöldi gjaldenda í þessu landi er þannig stæður, að hann getur ekki, þótt lögtak sé reynt, borgað útsvörin. Það er mikill fjöldi manna hér á landi, sem er þannig staddur fjárhagslega, að hann hefir ekki meira en það, sem hann má taka undan frá lögtaki. Nú kynnu einhverjir að segja, að það væri nær að nema burtu eitthvað af gjöldum bæjar- og sveitarfélaga, og er ég því samþykkur. En það var ekki á verksviði n. að gera það, og þó vil ég fyrir mitt leyti fara inn á þá braut, að láta ríkissjóð gefa bæjar- og sveitarfélögum eftir fasteignaskatt, og fella burtu framlagið úr sýslum og bæjum til berklavarna. En við þetta var ekki komandi, og þess vegna voru ekki nein önnur ráð til hjá n. heldur en að fara þessa leið, sem farin var. Þeir, sem eru á móti þessu frv., geta verið það af tveimur ástæðum, annaðhvort af því, að þeim finnst ósanngjarnlega skipt niður á gjaldstofnana, sem eru flestir gamlir, eða þá vegna hins, að þeir álita, að bæjar- og sveitarfélögin geti komizt af án þess að farið sé inn á þessa braut. Síðara atriðið er mjög veigalítið, enda viðurkenndi þingið í fyrra, að það væri þörf breyt. í þessu efni. því að annars var tilgangslaust að fyrirskipa endurskoðun á löggjöf bæjar- og sveitarfélaga, ef ekki átti einmitt að ganga í þessa átt, enda var viðurkennt, að svo ætti að vera. Það lá fyrir þinginu í fyrra fjöldi frv. um staði, sem vildu fá leyfi til þess að útvega sér tekjur sinn með hverju móti, en það var allt drepið niður með þeim rökum, að á þessu þingi skyldu koma l., sem bættu úr fyrir þessum bæjar- og sveitarfélögum. Nú er séð, að úr þessu ætlar ekki að verða neitt nema bergmál af því, sem ætlað var, því að þetta frv. verður ekki samþ. í neinni mynd á þessu þingi. Það er búið að fara þannig með þetta mál, að það er sýnilegt, að meiri hl. ætlar að skilja bæjar- og sveitarfélögin eftir í sama öngþveitinu og verið hefir.
Ég skal ekki núna fara mikið inn á þær brtt., sem liggja fyrir, að öðru leyti en því, að ég get aðeins sagt það um till. hv. 10. landsk. viðvíkjandi fasteignaskattinum, að ég mun greiða henni atkv., því að það var mín uppástunga í n., að láta bæjar- og sveitarfélögin fá fasteignaskattinn, og mér finnst það vera sanngjarnt. — Ég vil benda á það viðvíkjandi III. kaflanum, um vörugjaldið, að ég held, að það hafi verið það gjald, sem mér virtist mælast verst fyrir í allshn., og kemur mér það dálítið undarlega fyrir sjónir, þar sem það var einmitt umboðsmaður Alþfl. í n., sem átti upptökin að því, að sá kafli var settur í frv. Ég verð að segja, að mér finnst það vera betra fyrir bæjarfélögin og hin stærri kauptún, að hafa þann gjaldstofn, heldur en þann, sem nú er, og get ég ekki séð, að hann sé ósanngjarn. Það hefir verið rætt um, að það væri mjög ósanngjarnt gagnvart öllum bæjar- og sveitarfélögum, því að með því væru t. d. skattlagðir til Rvíkur íbúar bæjarfélaga hér á landi, sem verzla við Rvík, og einnig allir kaupstaðir, sem verzla við Rvík. Ég skal viðurkenna, að þetta er rétt, en þar á móti kemur annað, og það er, að sveitarfélögin fá líka tekjur af neyzlu bæjarbúa, svo að þetta er á víxl, svo að ég held, að sveitarfélögin verði ekkert verr úti. Þau fá sem svarar 4,00–4,50 kr. á hvern íbúa, og það er vitanlegt, að það er að langmestu leyti tekið af neyzlu annarsstaðar frá, því að það er meira en helmingur af þeirri neyzlu, sem farið hefir fram í kaupstöðum og kauptúnum, og sennilega miklu meira. Það eru náttúrlega skattar á kaupstaðina og kauptúnin, sem koma á móti því, sem kaupstaðirnir fá í skatt af neyzlu sveitanna. Ástæðan til þess, að ég fyrir mitt leyti gat gengið inn á þetta vörugjald, var sú, að ég sá, að skipting sú, sem varð að gera á tollaviðaukannm, ef ekkert annað ætti að gera, var ákaflega erfið, að skipta þannig milli kaupstaða, kauptúna og sveitarfélaga. Þó að skipting eftir höfðatölu í sveitum sé dálítið gróf, þá verður hitt þó miklu verra, að skipta eftir höfðatölu um land allt, sérstaklega í kaupstöðunum, af því að útsvör í kaupstöðum eru miklu hærri á íbúa heldur en í sveitum. Ég ætla, að útsvörin séu hér í Rvík upp undir 100 kr. á hvern íbúa, en ef maður lítur á skrána yfir útsvör í sveitum landsins, þá getur maður fundið ýms dæmi þess, að útsvörin eru ekki hærri en 8–10 kr., og jafnvel niður í 7 kr., á hvern íbúa hreppsins. Þó er þetta ekki einhlítur mælikvarði, því að það er auðsætt, að gjaldþolið er líka mismunandi í sveitum landsins, svo að það er ekki hægt að komast framhjá ósamræminu. En í hinum stærri kauptúnum og kaupstöðunum verður það svo lítill hluti, sem dregst frá útsvörunum til þessa neyzluskatts, að það munar sama og engu. Það verður í sumum hreppum allt að því hálft útsvarið, en í Rvík ekki nema örlítill hluti. Það verður 1/25 eða eitthvað svipað því. Ég held því, að öllu athuguðu, að frv., eins og það var borið fram, hafi haft meiri líkur til þess að ná samþykki heldur en það hefir með þeim breyt., sem hér er stungið upp á.
Ég þykist sjá, að þetta mál muni ekki verða afgr. á þessu þingi sem l., og tel ég það mjög illa farið. En ég óska þess fyrir mitt leyti, að málið geti fengið einhverja afgreiðslu í þessari d., til þess að það geti komið eitthvað til umr. í Nd., því að það er til gagns vegna framtíðarinnar að heyra sem flestar raddir um þetta mál. Svo er það eitt atriði í þessu máli, sem gerir óhjákvæmilegt að endurskoða þessa löggjöf, og það er framfærslulögin nýju. Það er vitað, að þau leggja mjög stórar byrðar á kaupstaðina og stærri kauptúnin. Og það er svo, að sum sveitarfélögin losna að allmiklu leyti við fátækraframfærsluna eftir nýju l., og kemur það aftur niður annarsstaðar. Og það sjá allir, að það er ekki hægt að leggja slíkar byrðar á kaupstaðina, og ætla þeim ekki neitt á móti. Að því leyti sem kynni að vera vísað til væntanlegrar kreppuhjálpar bæjar- og sveitarfélaga; þá vil ég benda á það, að sú kreppuhjálp nær ekki lengra en til þess að semja um og fá gjaldfrest á þeim skuldum, sem þegar eru til orðnar, en hjálpar ekki neitt að því er snertir þær byrðar, sem hvíla áfram og myndast af nýju á bæjar- og sveitarfélögin. Ég tel, að með því að setja l. um þetta efni, þá hefði verið bætt allvel úr bæði fyrir bæjar- og sveitarfélögum, því að fátækraframfærslunni hefir þá verið komið fyrir á vissan hátt, sem ég skal ekki segja um, hvort er réttlátur eða ekki. Kreppuhjálpin dreifir á komandi tíma þeim byrðum, sem þegar eru fallnar á fyrir 1. janúar 1936, en þetta frv. átti að fyrirbyggja, að haldið yrði áfram að safna byrðum á herðar bæjar- og sveitarfélaganna. Einmitt þetta var verkefni þessarar löggjafar. — Ég hefi ef til vill gleymt einhverju, sem ég hefði viljað taka fram, en mun þá gera það síðar, og læt útrætt um þetta að sinni.