28.04.1936
Efri deild: 58. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í C-deild Alþingistíðinda. (2819)
30. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga
Bernharð Stefánsson:
Ég vil benda á, að komið er að þinglausnum, svo að hraða verður öllum málum, sem á annað borð er tilætlunin að afgreiða. Mér finnst, að hv. 4. þm. Reykv. geti vel komið með brtt. sínar skriflegar. Ég þykist vita, að enginn fari að synja afbrigða.