29.04.1936
Efri deild: 59. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 531 í C-deild Alþingistíðinda. (2835)

30. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

*Frsm. 2. minni hl. (Páll Hermannsson):

Það fara nú að verða töluvert langar umr. um þetta frv. og ekkert skemmtilegar, og væri réttast að hafa þær ekki lengri. En þar sem svo stendur á, að ég mun vera talinn frsm. einhvers hl. í allshn., þá þykir mér rétt að segja um frv. örfá orð, áður en það fer út úr d.

Ég skal þá í fyrsta lagi segja það um þetta frv. eins og það lá fyrir í byrjun, að ef þeir tímar, sem við nú lifum á, hefðu mátt teljast svona nokkurnveginn eðlilegir, þá hefði ég getað fallizt á höfuðstefnu frv., sem var í því fólgin, að leggja nokkur gjöld á innfluttar og útfluttar vörur, til þess að létta af sveitarútsvörum bæjar- og sveitarfélaga í landinu. En af því að ég tel þessa tíma ekki eðlilega — og það óeðlilega við tímana tel ég það, að aðalatvinnuvegir landsmanna eiga við alveg óvenjuleg vandræði að stríða — þá hefi ég ekki getað fallizt á, að það væru sérstaklega lögð gjöld á þessa aðalatvinnuvegi landsmanna. Þó að það standi nú kannske svo á, að það séu vissir menn í landinu, sem telja sig hafa einkarétt til þess að sjá vandræði atvinnulífsins og segja frá þeim, þá mun það vera svo, að flestir, ef ekki allir landsmenn, finna til þess, að atvinnulífið á alveg sérstaklega erfitt uppdráttar nú. Með hliðsjón af þessu var það, sem við framsóknarmenn í allshn. lögðum til, að III. kafli upphaflega frv. yrði felldur burtu. Hinsvegar skal ég játa það, að eins og frv. er nú orðið, þá er ekki með því séð eins vel fyrir þörfum kaupstaða og kauptúna eins og gert var með upphaflega frv., en aftur á móti tel ég, að með frv. eins og það er orðið nú, þá sé í raun og veru betur séð fyrir þörfum sveitarfélaganna heldur en með hinu upphaflega frv. Það byggist á því, að þau halda eiginlega öllum þeim tekjum, sem þeim var ætlað í hinu upphaflega frv., en losna undan útgjöldum, sem ætlað var, að legðust á fólkið í sveitunum. Það sagði einhver þm. áðan, að sveitarfélögin þyrftu síður á tekjustofnum að halda heldur en kaupstaðir og kauptún. Ég skal ekki leggja neinn dóm á þetta, en vil bara slá því föstu, að það eru til margir sveitahreppar í þessu landi, sem þurfa á nýjum tekjustofnum að halda. Mér er sjálfum persónulega kunnugt um, að víða í sveitum verður að leggja útsvör á fólk, sem því er um megn að greiða. Það verður að greiða útsvör ekki aðeins af rekstri eða arði atvinnu sinnar, heldur af eignum sínum, meðan þær eru nokkrar til. Og þar sem svo stendur á, er vissulega þörf á nýjum tekjustofnum. –Þegar við hv. 2. þm. S.-M. gerðum till. okkar til breyt. á þessu frv., þá bjóst ég ekki við því frekar, að það yrðu þær till. eingöngu, sem fengju að komast inn í þetta frv. Ég gerði þær till. sérstaklega með hliðsjón af málstað sveitahreppanna, og ég get í hreinskilni sagt, að ég bjóst jafnvel við því, að inn í þetta frv. yrði bætt nýjum tekjum til handa kaupstöðunum, og ég bjóst líka við því, að vel gæti komið til mála, að farið yrði fram á einhverja aðra skerðingu á þeim upphæðum, sem III. kafli frv. nú gerir ráð fyrir. En nú virðist sem það muni verða svo í þessari d., að það verði fyrst og fremst till. okkar, sem gera breyt. á frv. Ég veit að vísu ekki fyrir víst, hvað af till. verður samþ., en mér þykir líklegt, að frv. fari úr þessari d. lítið breytt frá því, sem það er nú. Og þó að ég viðurkenni, að það hefði þurft að bæta betur úr tekjuþörf kaupstaðanna, þá er það svo, að það er nokkuð annað að sjá þörfina á umbótum og svo hitt, að sjá ráð til þess að bæta úr henni. Ég verð að taka undir það, sem hv. 1. þm. Eyf. sagði hér í dag, að þó að menn kunni að álíta, að töluvert vanti á til þess að bæta úr brýnustu þörf landsmanna í heild, þá er þetta frv. þó töluvert spor í áttina. Ég ímynda mér, að það láti nærri, að eftir þessu frv. hafi sveitahrepparnir þær tekjur, sem upphaflega frv. gerði ráð fyrir, en að það vanti um 400 þús. kr. af þeim tekjum, sem kaupstöðum og kauptúnum var ætlað. En samt er það svo, að kaupstöðum og kauptúnum eru ætlaðar tekjur upp á a. m. k. eina milljón. Og þegar maður svo jafnframt hefir það í huga, að nú lítur út fyrir, að berklavarnagjaldinu verði létt af í því formi, sem það hefir verið, þá minnkar nú mismunurinn að töluverðu leyti frá því, sem gert var ráð fyrir í upphaflega frv. Ég vil sérstaklega láta þess getið, að þótt við höfum lagt til að fella niður gjaldið af framleiðsluvörunum nú, þá er það ekki vegna þess, a. m. k. fyrir mér, að ég ekki álíti, að það megi vel leggja gjald á framleiðsluvörur, þegar sæmilega árar, þegar atvinnuvegirnir ganga sæmilega og viðskiptalífið er þar af leiðandi sæmilega fjörugt. En mér finnst, eins og nú er ástatt, ekki gerlegt að gera það. Við vitum, að atvinnuvegirnir í landinu, bæði landbúnaðurinn og sjávarútvegurinn, hrópa til þingsins um að létta af sér gjöldum, og ekki aðeins það, heldur líka um að fá beina fjárhagslega hjálp frá ríkissjóði. Þá er sjáanlegt, að eitthvað muni vera bogið við að leggja sérstök ný útgjöld á þessa sömu atvinnuvegi. Sumir segja að vísu, að þetta séu ekki ný gjöld, það sé aðeins tilfærsla á gjöldum, en það er ekki nema hálfur sannleikur, og ekki það. Því að vitanlegt er, að ekki er meiningin, að þessar nýju tekjur sveitar- og bæjarfélaga skuli eingöngu ganga til þess að létta útsvörum af atvinnurekendum.

Mér hefði þótt nokkurs um vert, að þetta frv. fengi staðfestingu eitthvað líkt því, sem það er nú, þótt maður hafi náttúrlega fulla ástæðu til að efast um, að svo geti orðið nú á þessu þingi, úr því að málið er ekki komið lengra áleiðis ennþá. En út af skoðun þeirra manna, sem vilja slá málinu algerlega á frest, vil ég segja, að ég man ekki betur en að hæstv. atvmrh. hafi lýst yfir, að hann ætlaði að fela þeirri sömu n., sem undirbjó þetta frv., áframhaldandi starf í sama augnamiði. Ég verð að segja, að þeirri ágætu n. þyrfti að takast það starf einhvernveginn öðruvísi en hið fyrra starf, ef ætla mætti, að hæstv. ráðh. fái frá henni till., sem honum væri verulega ljúft að taka á móti, því að mér hefir fundizt, að því leyti sem hann hefir minnzt á þetta mál hér í deildinni, að það væri býsna lítið í tillögum þessarar nefndar, sem hæstv. ráðherra getur fallizt á.