08.05.1936
Neðri deild: 69. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í C-deild Alþingistíðinda. (2851)
30. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga
*Páll Þorbjörnsson:
Ég flyt hér brtt. við þetta frv. á þskj. 581. Þessi brtt. mín felur það í sér að takmarka þá heimild, sem er í frv. um að leggja á vegaskatt í kaupstöðum, þar sem eru færri en 2500 íbúar. Ég get í sjálfu sér sagt það sem mína skoðun, að ég er á móti þessum vegaskatti í hverri mynd sem hann er, en þó tel ég sérstaklega varhugavert að heimila bæjarstj. í kaupstöðum að leggja þennan skatt á, og mér er kunnugt um það, að í nokkrum stærri bæjum telja bæjarstj. þetta ekki heppilega leið. Það getur að skilja, að öllu óréttlátari skatt er ekki hægt að hugsa sér en að leggja á nefskatt, jafnt á þann, sem er ágætlega efnum búinn, og hinn, sem býr við þröngan kost. Ég sé ekki, að það þurfi að fara mörgum orðum um þessa brtt. En ég vil þó ennfremur undirstrika það, að í 13. gr. frv. er gert ráð fyrir því, að þau dagsverk, sem mundu koma vegna vegaskattsins, væri bæjarsjóði heimilt að nota sem framlag á móti atvinnubótavinnunni. Þessi gr. gerir ráð fyrir að rýra atvinnubótavinnuna. Hún gerir ráð fyrir, að verkamenn í atvinnubótavinnu fái í raun og veru ekki greitt í peningum fyrir sína vinnu nema 1/3 hl. vinnulauna. — Ég held, að ég geti svo látið staðar numið um þetta atriði, en af því að hv. þm. N.-Þ. dvaldi nokkuð við einn lið þessa frv., sem sé skattinn á síldarverksmiðjur ríkisins, þá vildi ég fara um það nokkrum orðum. Það er í sjálfu sér ekki nýtt hér á Alþingi, að rætt sé um skatt á síldarverksmiðjur ríkisins. Hann hefir komið fram í tekjuöflunarfrv. fyrir einstök bæjarfélög, og get ég í raun og veru vísað til þeirra umr., sem fram hafa farið um það áður. Hv. þm. N.-Þ. gat um það, að einhver ræðumaður hér á undan hefði minnzt á það, að þessi skattur á síldarverksmiðjurnar gæti á sumum stöðum numið sem svaraði allri útsvarsupphæð bæjarins eins og hún er nú. Ég vil í þessu sambandi minna á það, að ef reiknað er út frá þeirri rekstraráætlun, sem hefir verið gerð fyrir síldarverksmiðjuna á Sólbakka, og miðað við það verð, sem nú er á framleiðsluvörunni, þá mundi verksmiðjan eiga að greiða rúmlega 16 þús. kr., en 1933 voru öll útsvör í þessum hreppi 16900 kr. Það er sem sagt, að ofan á hina miklu atvinnu, sem verksmiðjan skapar í plássinu, þá gæti hún gert íbúana nærri því útsvarsfría. Ég skal ennfremur benda á annað tilfelli. Þar er að vísu ekki um síldarverksmiðju að ræða, sem ríkið á, en ég geri ráð fyrir, þegar hreppsfélögin færu að leggja útsvar á aðrar síldarverksmiðjur en síldarverksmiðjur ríkisins, að þeim fyndist ekki ástæða til að setja þær skör lægra. Ég hefi reiknað út, hvað Krossanesverksmiðjan og Dagvarðareyrarverksmiðjan, sem ég hygg, að báðar séu í sama hreppnum, mundu greiða mikið útsvar, og mér telst, að þær eigi að greiða 24 þús. kr., en útsvörin voru í þessum hreppi 1933 um 24 þús. kr. Aftur á móti skal ég geta þess, að verksmiðjan á Raufarhöfn mundi ekki eiga að greiða eftir þessum skattstiga meira en rúmlega 3 þús. kr., miðað við síldarvinnslu tveggja mánaða tíma, svo að það má segja, að þar gæti nokkuð mikils misréttis. Ég veit nú ekki, hversu hátt útsvar verksmiðjan hefir borið áður, þegar hún var í einstakra manna eign, en svo mikið er víst, að Raufarhafnarbúar lögðu mikla áherzlu á, að ríkið keypti þessa verksmiðju, og var þeim þó ljóst, að um leið féll í burtu tekjustofn fyrir hreppsfélagið. En þeir litu svo á, að þetta skapaði þeim miklu meira öryggi heldur en það útsvar, sem hinn fyrri eigandi hafði. Ég skal ennfremur benda á það, að mér telst til, að síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði muni eiga að greiða 36 þús. kr. eftir þessum 0,8% skattstiga. Ég get í raun og veru fallizt á, að það sé ekki rétt, að þessi ríkisfyrirtæki, síldarverksmiðjurnar, séu útsvarsfríar. En ég vil benda á, að mér þætti sanngjarnt, að þær sættu ekki verri kostum heldur en samvinnufélögin í landinu. Þess vegna gæti ég sætt mig við, að síldarverksmiðjurnar greiddu 2% af fasteignamati húsa sinna, eins og samvinnufélögin. Ég held, að það hefði verið rétt að flytja brtt. við þetta frv., sem færi í þá átt, að setja síldarverksmiðjunum sömu kosti og samvinnufélögunum, og mér hefði fundizt vel viðeigandi, að slíkt hefði komið frá einhverjum samvinnumanni, t. d. hv. þm. N.-Þ. Viðvíkjandi því, sem hv. þm. N.-Þ. var að tala um Raufarhöfn, verð ég að segja, að það er ekki ástæða til þess að gera endilega ráð fyrir því, að aldrei geti komið til þess, að síldarverksmiðjan þar starfi nema um síldveiðitíma ársins. Ég tel það ekki útilokað, að þar verði stundaðar karfaveiðar. Það er alveg órannsakað, hvort karfamið eru ekki annarsstaðar en fyrir Vestfjörðum. Ef slík mið væru þarna nálægt, mundi þessi verksmiðja verða notuð til karfavinnslu. Ennfremur vil ég benda hv. þm. á það, að þótt lítið verðmæti liggi nú sem stendur í húsum verksmiðjunnar á Raufarhöfn, þá er líklegt, að þeim verði breytt eða þau byggð upp, og að þau þar af leiðandi stigi þó nokkuð í verði. Það er búið að bera fram brtt. um þetta gjald síldarverksmiðjanna, þannig að það sé fært niður um helming. Ég verð að segja, að mér finnst það til stórbóta, en þó teldi ég það miklu æskilegra, að það yrði farið inn á þá braut, sem ég var að tala um, að síldarverksmiðjurnar yrðu látnar sæta sömu kjörum og samvinnufélögin.