08.05.1936
Neðri deild: 69. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í C-deild Alþingistíðinda. (2854)

30. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

*Héðinn Valdimarsson:

Það var varla við því að búast, að það yrði samið frv. fyrir þetta þing, sem næði samþ. þingsins, um tekjur bæjar- og sveitarfélaga, á svo stuttum tíma, sem n. hafði til starfa. Má þó segja, að hún hafi leyst af hendi töluvert starf og lagt grundvöllinn að því, sem verða ætti, þó að ég verði að segja, að það vanti mikið í þetta, t. d. breytta löggjöf um útsvör. Það býst ég við, að flestir séu mér sammála um, að útsvarsfyrirkomulagið sé úrelt orðið. Þótt það eigi við á minni stöðum, þá er það fjarri því, að það geti átt við alstaðar. Ég verð að segja, að ég er algerlega óviss um, að betra sé, að þetta mál nái framgangi nú á þessu þingi. Málið hefir verið talsvert rætt og upplýst þannig nú á þingi, að ég býst við, að hægt væri að ná samkomulagi fyrir næsta þing um grundvöll undir þetta mál. En eins og er, þá má segja, að hver höndin sé uppi á móti annari í þessu máli. Það er einn kafli í þessu frv., sem ég verð að segja, að ég er mjög undrandi yfir, að ýmsir menn úr Sjálfstfl. skuli vera fylgjandi. Það mun flestum í minni, hvernig sjálfstæðismenn hafa hamazt móti viðskiptagjaldinu, og svo koma þessir sömu menn nú og berjast fyrir, að þessi III. kafli frv. verði samþ. Ég verð að segja það með hv. 1. landsk., að ég er mótfallinn, að þessi tekjustofn verði notaður, og mun greiða atkv. móti því. Það er tími til þess kominn að koma með brtt. um einn kafla í viðbót við þetta frv., þar sem kæmi ákvæði um, að teknir yrðu skattar bæði af samvinnufélögum og ríkisstofnunum, sem gert er nú að nokkru leyti, og svo þeim öðrum félögum, sem reka starfsemi víðsvegar um land. Ég álít, að það sé svo komið nú orðið, að það sé ekki með öllu hægt lengur að sleppa þessum fyrirtækjum við skatt. Ég mun greiða þessu frv. atkv. eins og það liggur fyrir, ef samþ. verða brtt. frá hv. 1. landsk. um það, að nema burt III. kaflann, um aðflutningsgjald, og þær brtt., sem hann hefir gert um ríkisverksmiðjurnar. Auk þess er ég að sjálfsögðu með brtt. á þskj. 519, sem ég vil segja nokkur orð um. Í frv. er gert ráð fyrir, að lóðarleigjandi borgi fasteignaskattinn, en í till. þeirri, sem ég hefi borið fram, er aftur á móti gert ráð fyrir, að eigandinn borgi skattinn af leigulóðinni eða öðrum samningsbundnum jarðarafnotum, ef árleg leiga er 5% af fasteignamatsverði, en sé árleg leiga undir 5% en yfir 3½, þá greiði leigjandinn 2/3, en eigandinn 1/3, en ef árleg leiga er ekki yfir 3%, greiðist skatturinn allur af leigjanda. Í Rvík eru t. d. mörg hundruð manna, ef ekki á annað þúsund, sem hafa leigulóðir hjá bænum og borga 5% af fasteignamati; fyrir utan það að borga þessi 5%, verður lóðareigandinn að gera umbætur á jörðinni, sem eru svo taldar með í fasteignamatinu, svo að það er ekki hægt að segja annað en að lóðarleigjandi borgi það, sem honum ber, og lóðareigandi fái það, sem honum ber. Í tilfelli eins og þessu vil ég legga til, að skatturinn falli niður, ef bærinn er eigandinn, en ef eigandinn er annar, þá skuli hann borga skattinn. Ef afgjaldið er aftur á móti lægra en þetta, þá er skattinum þannig skipt niður, að því lægri sem hann er, þess meira borgar leigjandinn. Siglufirði er þetta öðruvísi en hér, þar sem fasteignamatið fer fram á 5 ára fresti; þar er leigan til 50 ára, svo að menn hafa stórar landspildur og borga mjög lítið verð fyrir, svo að þetta nálgast það að vera eign, og þá er eðlilegt, að borgað sé af því til bæjar. Svipað hefir verið að segja um hl. af því landi, sem leigt hefir verið út í Vestmannaeyjum, þó að tekin hafi verið í seinni tíð sama regla og í Rvík. Með þessari till. minni álít ég, að það komist réttlæti á milli mismunandi staða, eftir því hvernig lóðaleigan er á hverjum stað, en í frv. er ekkert tekið tillit til þess. Ég vænti þess, að brtt. mín verði samþ. eins og hún liggur fyrir.