08.05.1936
Neðri deild: 69. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 552 í C-deild Alþingistíðinda. (2855)

30. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

*Jónas Guðmundsson:

Það hefir verið minnzt á, að það væri undarlegt, að ég skyldi ekki láta til mín heyra um þetta mál, þar sem ég væri einn af þeim þrem nm., sem sömdu þetta frv. Ég get sagt það, að ástæðan fyrir því, að ég hefi ekki skipt mér af þessu máli síðan það kom til þessarar hv. d., er sú, að ég álít, að eins og frv. er nú orðið eftir meðferðina í hv. Ed., þá sé það ekki þess virði, að það verði samþ. Fyrir okkur, sem sömdum frv., vakti það, að af samþykkt þess mætti leiða það, að sveitarfélögin fengju nýjar tekjur aðrar en þær, sem þau höfðu áður haft, og við tókum fullt tillit til þeirra þriggja aðalleiða, sem hér um ræðir, sem sé að skaffa þeim sveitarfélögum fasteignaskatt, sem ekki höfðu að lögum rétt til þess að hafa hann áður, en það eru eiginlega aðeins kaupstaðirnir, sem hafa hann; í öðru lagi tókum við tillit til þess, að ríkisfyrirtæki yrðu á einn eða annan hátt skattlögð til þeirra staða, þar sem þau eru, því að það er sanngjarnt, þegar tekin er upp ríkiseinkasala eða sett á stofn einhverskonar ríkisstofnun, sem útilokar aðra borgara þjóðfélagsins frá því að geta rekið slíka atvinnu og hagnazt á henni, og þar með er viðkomandi sveitarfélag útilokað frá því að geta hagnýtt sér álagningu á þær stofnanir; og í þriðja lagi höfum við tekið tillit til þess að fá gjöld í einskonar tollum, vörugjald og aðflutningsgjald, þar sem það var alveg sýnt, að ekki var unnt að gera þá breyt. á útsvarslögunum, sem nauðsynleg er, því að sannleikurinn í þessu máli er sá, að við það, að samvinnufélögin hafa vaxið upp, sem ekki hafa greitt neitt rekstrarútsvar, heldur útsvar af húseignum og viðskiptum sínum við aðra en félagsmenn, hefir álagning á verzlanir, sem hefir alltaf verið þungamiðjan í allri útsvarsálagningu hér í landi, á mörgum stöðum alveg horfið, og vitanlega kemur það niður á bæjar- og sveitarfélögum þeim, sem hér eiga hlut að máli. Með breyt. á útsvarsl. mætti ef til vill færa þetta nokkuð til síns fyrra horfs, og ég álít mjög nauðsynlegt að gera það, en þangað til það fæst gert, sér enginn af okkur, sem í n. vorum, möguleika til þess að skaffa sveitarfélögunum aðrar tekjur en tolltekjur. Eins og þetta frv. er nú orðið, er það í rauninni ekki til neins gagns fyrir kaupstaðina, en þeir þyrftu sérstaklega að fá auknar sínar tekjur, miklu fremur en sveitirnar, vegna þess að af sveitunum hefir með löggjöf síðustu ára, sérstaklega þó með framfærslulögunum frá í fyrra, verið létt að miklu leyti því, sem á þeim hvíldi áður, og hefir það að mestu leyti verið yfirfært yfir á bæina og stærri kauptúnin. Það verða þau, sem í framtíðinni standa undir miklu af því, sem áður var skrifað á reikning sveitanna. Eftir því, sem þetta frv. er nú orðið, þá eru kaupstöðunum ætlaðar svo lítilfjörlegar tekjur, að ég álít ekki ómaksins vert að samþ. það. Þess vegna finnst mér réttast, fyrst menn eru svo skiptir um þetta mál, að það virðist ekki vera hægt að fá samkomulag um að auka tekjur bæjarfélaga, að þetta mál yrði látið daga uppi í þessari d., og hæstv. ríkisstj. mundi þá fyrir næsta þing láta endurskoða útsvarslögin, sérstaklega með tilliti til þess að breyta þessari skattaálagningu, því að það er mín skoðun, að sveitar- og bæjarfélögum verði ekki séð fyrir auknum tekjum á annan veg en þann, að breyta útsvarsálagningunni, eða taka hin gjöldin, eins og hér er gert ráð fyrir, og það hefir enginn hv. þm. bent á neinn nýjan tekjustofn, sem við höfum ekki áður tekið upp í frv. Það hefir verið minnzt á, að það mætti létta af sveitarfélögnnum með því að færa kostnaðinn yfir á ríkið, en ég held, að það muni fáir hv. þm. telja það heillavænlegt ráð. Ennfremur hefir verið á það drepið, að taka mætti eitthvað af tekjum ríkissjóðs og láta þær ganga til sveitarfélaganna, en við höfum nú afgr. fjárlög, sem sýna, að tekjur ríkissjóðs eru ekki of miklar, ef hann á að geta innt af hendi það, sem gert er ráð fyrir í þeim fjárlögum. — Skal ég svo ekki hafa þessi orð fleiri, því að ég álít þýðingarlaust að tala almennt um þetta mál núna.