08.05.1936
Neðri deild: 69. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í C-deild Alþingistíðinda. (2856)

30. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

*Gísli Guðmundsson:

Ég skal ekki lengja umr. mikið, en ég vil benda á, að það voru óréttmæt ummæli, sem hv. 5. þm. Reykv. viðhafði hér áðan um hv. 1. þm. Eyf., sem var einn af þeim, sem áttu sæti í mþn. þeirri, sem samdi þetta frv. Hann sagði um þennan mann, að hann hefði hlaupið á brott frá málinu, og virðist mér helzt eiga að skilja það þannig, að hann hafi yfirleitt ekki staðið fyrir sínum till., og jafnvel ekki sinnt málinu hér á þingi: Ég fullyrði, að þetta er rangt hjá hv. 5. þm. Reykv. Eftir því, sem mér er kunnugt um, hygg ég, að hv. 1. þm. Eyf. hafi ekki greitt atkv. á móti þeim ákvæðum, sem í frv. voru, og ég hygg, að hann hafi lagt mikla vinnu í þetta mál. Ég vænti því þess, að þetta hafi verið á misskilningi byggt hjá hv. 5. þm. Reykv.

Hv. 3. landsk. minntist hér á atriði, sem ég hafði gert að umtalsefni áður, að það myndi vera réttara að leggja fasteignaskatt á síldarverksmiðjurnar en það gjald, sem hér um ræðir, en hv. þm. gat ekki hrakið það, sem ég sýndi fram á, að þessi fasteignaskattur kæmi mjög óréttilega niður á verksmiðjurnar, sökum þess að þær hafa yfir fasteignum að ráða, sem eru mjög mismunandi verðmiklar og standa ekki í hlutfalli við rekstrarafkomu verksmiðjanna. Hv. þm. gat þess, að við því mætti búast, að á þessu yrði breyt., þannig að það yrðu byggð hús á þeim stöðum, þar sem verksmiðjurnar eru, og er þess að vænta, að það verði gert, en þetta frv., sem hér liggur fyrir, virðist eiga að miða við þá aðstöðu, sem nú er fyrir hendi. Annars hafa sumir hv. þm., hv. þm. Borgf. og hv. 3. landsk., látið sér tíðrætt um, að það væri nokkuð hart, að þeir staðir, sem hafa sótzt eftir því að fá síldarverksmiðju reista hjá sér, skyldu vera að fara fram á slíkt gjald. Ég verð að segja, að ég kann illa við þennan sífellda són, því að það er vitanlegt, að síldarverksmiðjurnar hafa ekki verið reistar fyrst og fremst vegna þeirra staða, sem þær standa á, heldur vegna þeirra, sem síldina veiða, til þess að skapa möguleika fyrir því, að úr þeirri framleiðslu geti orðið verðmæti. Ég býst ekki við því, að hægt sé að færa nein skynsamleg rök fyrir því, að þeir menn, sem leggja upp síld til bræðslu í verksmiðjum ríkisins, eigi síður að greiða opinber gjöld af sínu verðmæti en þeir, sem leggja í einkarekstur. Annars er það svo, að þó að það sé gott fyrir einstaka staði að fá slíkan atvinnurekstur, þá fylgir þar böggull skammrifi, því að það eru ýms útgjöld í sambandi við þennan rekstur, sem þeir staðir, er hér eiga hlut að máli, þurfa að inna af höndum. Kringum allan slíkan atvinnurekstur vex upp fátækraframfæri, sem ella hefði ekki skapazt, og svo er ýmislegt fleira, sem komið getur til greina í þessu sambandi. Ég skal benda á verksmiðjuna á Raufarhöfn, sem ég er kunnugastur. Á þeim stað hafa skapazt ýms útgjöld vegna verksmiðjunnar, svo að mikill hl. af útgjöldum þess hrepps, sem þessi staður er í, er vegna manna og ýmsra hluta á þessum stað. Það er því hvorttveggja eðlilegt, að fólkið á þessum stöðum vilji fá þennan atvinnurekstur, og það er líka eðlilegt, að það vilji leggja opinber gjöld á þessi fyrirtæki.