08.05.1936
Neðri deild: 69. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í C-deild Alþingistíðinda. (2857)

30. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

*Pétur Halldórsson:

Ég get ekki látið hjá líða að minnast á ræðu hv. 2. þm. Reykv., sem átti víst að vera til þess að mæla bót framkomu meirihlutaflokkanna á þingi í þessu máli. Ræðan var næsta skopleg, og endaði hv. þm. hana á því að benda á það, að eins og frv. væri orðið núna, mætti kalla það góðan samvinnugrundvöll milli flokka um lausn þessa máls. Sannleikurinn er sá, að ekki einu sinni innan flokka geta menn komið sér saman um málið, hvað þá heldur flokkarnir sín á milli.

Út af brtt. hv. þm. við ákvæðið um skattskyldu lóðaleigjenda, vil ég taka það fram, að ég tel rétt, að lóðaleigjendur greiði þennan litla skatt, vegna þess m. a., að það er vitað og viðurkennt, að þeir, sem búa á leigulóðum hér í bæ, búa betur en þeir, sem búa á sínum eigin lóðum. — Það er gleðilegt að heyra það, sem fram kom bæði hjá þessum hv. þm. og líka hjá hv. 6. landsk., að sósíalistar skuli nú loksins vera farnir að skilja það, að ekki sé lengur unandi við það, að samvinnufélögin séu skattfrjáls.