29.02.1936
Efri deild: 12. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í C-deild Alþingistíðinda. (2876)

38. mál, tilraunastarfsemi í þágu landbúnaðarins

*Flm. (Þorsteinn Briem):

Ég vék að því í sambandi við það mál, sem var á dagskrá áðan, að innlend búnaðarþekking hefði nokkuð aukizt á síðustu áratugum fyrir þær tilraunir, sem gerðar hafa verið hér á landi. Ég ætla, að það hafi verið á síðustu árum síðustu aldar, að Búnaðarfélag Íslands reisti gróðrarstöð hér í Reykjavík, til þess að gera þar tilraunir í íslenzkri garðrækt. Þannig stofnaði það til fóðurtilrauna 1912 og hefir haldið þeim áfram síðan. Þá stofnaði Ræktunarfélag Norðurlands tilraunastöð 1903, og síðan hafa verið stofnaðar fleiri tilraunastöðvar hér, sérstaklega í jarðrækt. Á Vestfjörðum var og stofnuð tilraunastöð, sem lagðist niður fyrir nokkrum árum.

Þessum tilraunastöðvum er það að þakka, að tekizt hefir að finna nýjar aðferðir í jarðrækt, og án efa eru og þeim að þakka hinar stórfelldu framfarir, sem orðið hafa í jarðrækt nú síðustu árin. Jafnframt þeim tilraunum, sem ég nú hefi nefnt, hafa bæði einstakir bændur og búnaðarsamböndin haft ýmsa tilraunastarfsemi með höndum. — Hinar skipulagslausu tilraunir hafa gefizt mjög misjafnlega, og mun óhætt að segja, að þau mistök, sem á þeim hafa orðið, hafa frekar orðið til hins verra. Það leiðir því af sjálfu sér, að að því ber að vinna, að auka hinar skipulagsbundnu tilraunir. Hvað snertir tilraunastarfsemi Búnaðarfél. Ísl., þá er ekki hægt að segja, að henni sé borgið á meðan félagið þarf svo mjög undir högg að sækja um allar fjárveitingar eins og nú á sér stað. Það er því brýn nauðsyn, að sett sé löggjöf um þetta efni, og því er frv. þetta borið fram. Frv. er miðað við og sniðið eftir till., sem komið hafa fram á búnaðarþingum um þetta efni. Það er stefnt að því að koma upp fjórum stórum tilraunastöðvum, og svo aftur minni tilraunastöðvum í sambandi við þær. Jafnframt er gert ráð fyrir, að komið verði upp skipulagsbundnum tilraunastöðvum á búum bændaskólanna. Þá er og ætlazt til þess, að allar þessar tilraunastöðvar verði reknar í sambandi við vísindastofnanir þær, sem ríkið kostar og standa í nánu sambandi við jarðrækt og kvikfjárrækt. Að þessu lúta ákvæði 5. gr. frv. Það er vitað, að nú verja bændur um 3 millj. króna til ræktunar á jörðum sínum. Það skiptir því miklu máli, að fé þetta sé notað með hagsýni og þekkingu, en þeirrar þekkingar, sem að gagni má koma í þessum efnum, verður ekki aflað nema með innlendum tilraunum, því að tækni og þekkingu að því er snertir landbúnaðinn íslenzka er ekki hægt að sækja til reynslu annara landa, eins og hægt er t. d. að gera með sjávarútveginn. Þá er það og vitanlegt, að öflun fóðurs fyrir búpeninginn kostar fleiri millj. kr., og er því fyllsta þörf að afla þeirrar þekkingar, sem auðið er um þá hluti. Reynsla okkar hefir orðið sú, að þegar mannfellir hefir orðið sakir skorts, þá hefir hann jafnan stafað af því, að heyafli fyrir búpeninginn hefir orðið minni en nauðsyn hefir krafið. Með búpeningnum hafa menn misst lífsbjörg sína, og fallið svo af harðrétti á eftir. Þetta hefir saga liðinna alda sýnt okkur og sannað. Eins og nú standa sakir mun láta nærri, að um helmingur landsmanna eigi afkomu sína undir því, að öflun á fóðri fyrir búpeninginn takist vel; má því öllum vera ljóst, hve ríka nauðsyn ber til þess, að allrar hagsýni sé gætt um þessa hluti.

Þá er það og vitað, að bústofn landsmanna hefir ekki náð að gefa ennþá þann arð, sem hægt er að láta hann gefa og nauðsyn ber til. Tilraunir þær, sem einstaklingar hafa haft með höndum og miða hafa átt að því að bæta búpeninginn, hafa allmjög mistekizt, sérstaklega þó að því er snertir sauðfjárræktina. Úr þessu þarf að bæta, eftir því sem kostur er.

Þá er og þess brýn nauðsyn, að reyndar séu nýjar leiðir um fjölbreyttari framleiðslu, en til þess að það megi verða, þarf að gera innlendar tilraunir og byggja svo á þeim. En misheppnaðar tilraunir einstaklinganna hafa ekki aðeins þá afleiðingu að gera hlutaðeigandi einstaklingum tjón, heldur fæla þær og aðra menn frá að gera nýjar tilraunir, sem að gagni kynnu að verða. Til þess því að fá fullkomna þekkingu á þessum atriðum, er ekki annað fyrir hendi en að afla hennar innanlands, því að reynsla annara þjóða getur aldrei orðið einhlít til þess að byggja á hér, því að staðhættir hjá okkur eru á allt annan veg en með suðrænni þjóðum.

Mál þetta hefir oft verið rætt á búnaðarþingum nú að undanförnu, og ætla ég, að till. þær, sem í frv. felast, muni vera í fullu samræmi við þær till., sem þar hafa komið fram.

Að umr. þessari lokinni vænti ég, að frv. verði vísað til 2. umr. og landbn.