26.02.1936
Efri deild: 9. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í C-deild Alþingistíðinda. (2882)

43. mál, berklavarnir

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Að vissu leyti er rétt það, sem hv. flm. sagði, að nokkurt ósamræmi er í því, að sjúkratrygging taki við berklasjúklingum fyrstu 6 mánuði og njóti styrks úr bæjarsjóðum, og jafnframt sé bæjarsjóðum gert að skyldu að greiða ákveðið gjald til berklavarna. Eins og þm. muna, fylgir frv. um alþýðutryggingar og framfærslulög 3. frv., og í því er gert ráð fyrir, að berklavarnagjaldið verði fellt niður og tekin upp sérstök skipun á ríkisframlagi til allra þeirra, sem haldnir eru af langvarandi sjúkdóm, þ. e. yfir 6 mánuði, sem sjúkrasamlög þurfa mest að borga með sjúkling. Ég geri ráð fyrir, að þetta frv. verði lagt fyrir Alþingi nú mestu daga. Ekki vil ég setja mig gegn því, að þessu frv., sem hér liggur fyrir, verði vísað til nefndar, en vildi mælast til, að n., sem tekur þetta mál, afgreiði það ekki fyrr en hitt frv. kemur fram. Ég álít þá lausn, sem það felur í sér, miklu eðlilegri en þá, sem hér er stungið upp á. Ég tel í alla staði sanngjarnt og eðlilegt og ríkissjóði ekki um megn, að um berklaveiki gildi svipaðar reglur gagnvart ríkissjóði eins og ýmsa aðra langvarandi sjúkdóma. Geðveikisjúklingar eru kostaðir af ríkissjóði að nokkru leyti, holdsveikisjúklingar að öllu leyti. En ætlunin með þessum lagabálki er að setja fastar og ákveðnar reglur um þetta allt.

Þá vil ég aðeins benda á það, að mér finnst þetta hreint fjárhagsmál ríkissjóðs. Ég vildi því leggja til, að málinu yrði vísað til fjhn. Náttúrlega geri ég þetta ekki að kappsmáli, en mér finnst málið eiga þar heima, nema ef menn vilja taka þann sið upp að setja yfirleitt fjárhagsmál í allshn.