14.03.1936
Efri deild: 24. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í C-deild Alþingistíðinda. (2888)
43. mál, berklavarnir
*Magnús Jónsson:
Það eru aðeins örfá orð út af því, að á öndverðu þingi var vísað til hv. fjhn. frv. um berklastyrki, sem greiddir eru af sýslu- og bæjarfélögum. Fjhn. hefir ekki afgr. þetta mál frá sér, af því að hæstv. atvmrh. lýsti því, að koma mundi fram frv., sem hefði að geyma aðra lausn á svipuðu máli. Ég fyrir mitt leyti hefi ekki óskað að afgr. þetta mál frá n., af því að ég hefi viljað bíða eftir því, að þetta frv. kæmi, sem hæstv. ráðh. gat um á dögunum.
Ég spyr nú hæstv. atvmrh., hvort von sé á þessu frv. bráðlega.