06.04.1936
Efri deild: 46. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í C-deild Alþingistíðinda. (2899)

43. mál, berklavarnir

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ef meiri hl. fjhn. er að bíða eftir afgreiðslu allshn., vil ég benda á það, að allshn. fékk sitt frv. miklu síðar til meðferðar. Ef hvor nefndin um sig ætlast til þess, að hin verði á undan, skilst mér, að afgreiðsla þessara mála geti dregizt endalaust. En mér finnst augljóst, að sú nefndin, sem fyrr fékk sitt mál til meðferðar, eigi að skila fyrr áliti.