30.04.1936
Neðri deild: 60. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í B-deild Alþingistíðinda. (290)
2. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Þetta frv. hefir verið í Ed. og ekki tekið þar öðrum efnisbreyt. en þeim, að inn í það var settur nýr liður, svo hljóðandi (14. liður):
„Á árinu 1937 leggur ríkissjóður ekki fram meira en 1000 krónur til bókasafna prestakalla, sbr. l. nr. 17 7. júlí 1931.“
En þegar frv. fór til Ed. var í því, að framlag til bókasafna prestakalla yrði ekkert greitt á árinu 1937.
En svo sé ég, að prentvilla hefir slæðzt inn í 11. lið frv. Þar er vitnað í l. nr. 79 frá 19. júní 1933, en á að vera l. nr. 75 frá 19. júní 1933. Hygg ég, að varla muni þurfa að flytja brtt. um þetta, til þess að atkvgr. geti farið fram um frv. En ég vil beina því til hæstv. forseta, hvort hann vildi ekki láta athuga þetta áður en l. verða afgr. til ríkisstj.