06.04.1936
Efri deild: 46. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í C-deild Alþingistíðinda. (2901)

43. mál, berklavarnir

Bernharð Stefánsson:

Ég man ekki betur en að þegar við 1. umr. væru bæði þessi mál, frv. um breyt. á berklavarnal. og frv. um ríkisframfærslu sjúkra manna og örkumla, sett í samband hvort við annað. Það er rétt hjá hv. 4. landsk., að beðið hefir verið eftir afgreiðslu framfærslufrv. í fjhn., þar sem það gerir hitt frv. óþarft, ef að lögum verður. En ég vil, úr því ég stóð upp, spyrja hv. allshn., hvað líði frv. um tekjustofna bæjar- og sveitarfélaga, sem verið hefir enn lengur á leiðinni.