06.04.1936
Efri deild: 46. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í C-deild Alþingistíðinda. (2905)
43. mál, berklavarnir
Magnús Guðmundsson:
Ég vil út af fyrirspurn hv. 1. þm. Eyf. um frv. okkar um tekjustofna bæjar- og sveitarfélaga, sem vísað var til allshn., svara því, að það, sem hefir dvalið afgreiðslu þess, er einhverskonar heimiliskritur á kærleiksheimili stjórnarinnar, sem hv. 1. þm. Eyf. er ef til vill ekki alveg ókunnugt um. En nú hefir mér verið lofað því, að málið skuli verða tekið fyrir á þriðjudaginn, og er það gleðilegur vottur þess, að samkomulag sé að glæðast í tvíbýli stjórnarflokkanna.