25.04.1936
Efri deild: 56. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 601 í C-deild Alþingistíðinda. (2963)
123. mál, klaksjóður og klakstöðvar
*Pétur Magnússon:
Ég er sammála hv. 4. landsk. um, að það þýði ekki fyrir okkur að taka upp umr. um, hvaða lax muni vera beztur til undaneldis, en ég efast ekki um, að laxinn erfi einkenni ættar sinnar, þannig að út af stórum laxi komi stórlax og út af smáum smár. Ef það er rétt, sem haldið er fram, og þar byggi ég á umsögn Pálma Hannessonar, að smálaxinn gangi fljótlega í árnar aftur, en, stórlaxinn ekki fyrr en síðar, þegar hann er búinn að vera nokkru lengur í sjó, þá er þess vegna ekki þýðingarlaust að hraða klakinu.
Ég skal ekki þræta við hv. þm. um, hvort í Laxá í Kjós er stórlax eða smálax, en í það eina skipti, sem ég var þar við veiði, sá ég varla annað en smálax, og það hafa sagt kunnugir menn, að hann sé alveg yfirgnæfandi, og mun það vera rétt, af hverju sem það stafar. Hitt kemur aðeins fyrir í fyrstu göngu, að stórlax sjáist, en það er alveg hverfandi við hitt. Er þetta stórt atriði, sem vel þarf að athuga, þegar ákveðið er, hvaða ár skuli taka til klaks.
Ég fyrir mitt leyti get ekki séð, að brýna nauðsyn beri til að binda það í frv., hvaða ár skuli taka í þessu skyni. Má vel fela þetta ríkisstj., því henni hefir verið falið ýmislegt það, sem meira er, og fyrst ég treysti stj. í þessu efni, ætti hv. 4. landsk. ekki að bera minna traust til hennar en ég. Mér hefir dottið í hug, án þess að ég vilji nokkuð um það fullyrða, að önnur á, Grímsá í Borgarfirði, muni að ýmsu leyti vera eins vel til þess fallin. Er þar mikill og stór lax og lega ágæt til þess að koma seiðunum burtu, bæði um Borgarfjörð, Húnavatnssýslur og til Suðurlandsins. Er tvímælalaust auðveldara að koma seiðunum út um land frá Grímsá en Laxá. Auk þess hefir Grímsá þann góða kost, að lítill lax hefir verið tekinn úr henni á síðustu árum. Er hún talin næstbezta veiðiá í Borgarfirði, en laxinn tekur þar illa og safnast í stóra hylji; t. d. er gott að ná honum í Gvendarhyl í Lundarreykjadal. Ég hygg því, að ríkisstj. ætti að hugsa sig vel um áður en hún velur Laxá fremur en Grímsá. Auk þess sem hún er ein bezta veiðiá, á ríkissjóður þar eignir, sem gera aðstöðuna stórum betri. Er þetta fremur til athugunar en til þess að slá nokkru föstu. Tel ég heppilegra, að ekki sé kveðið á um þetta með lagasetningu, en það á að vera komið undir rannsókn færustu manna, sem ríkisstj. nefnir til.