02.05.1936
Efri deild: 62. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 603 í C-deild Alþingistíðinda. (2969)

123. mál, klaksjóður og klakstöðvar

*Frsm. (Jón Baldvinsson):

Brtt. þær, sem ég vil minnast fyrst á, eru á þskj. 491. Fyrri brtt. er sú, að gjaldið í klaksjóðinn verði ekki haft nema 3 aurar af hverju kg. af laxi, í stað þess, sem í frv. er gert ráð fyrir, að það verði 6 aurar. Þessi lækkun er gerð til samkomulags við hv. 2. þm. Rang., sem taldi gjald þetta of hátt eins og það er í frv. Síðari brtt. er við 3. gr. frv., og er þar lagt til, að það skuli vera minnst 10% af árlegri seiðaframleiðslu klakstöðvanna, sem beri að láta í þær ár og þau vötn, sem stofnveiðin er úr, í stað þess, sem í frv. er sagt, að það skuli vera „allt að“ 10%.

Út af óánægju þeirri, sem komið hefir fram um það, að ekki skuli vera heimilt samkv. 4. gr. frv. að taka veiði annara veiðivatna hér syðra á leigu vegna stofnveiða til klakstöðvanna en Laxár í Kjós og Bugðu ásamt Meðalfellsvatní í sömu sveit, þá hefi ég til samkomulags flutt brtt. um að bæta við, að henni sé einnig heimilt að taka á leigu til þessara hluta veiðiréttindi Grímsár í Borgarfirði, ef það kann að virðast heppilegra. Brtt. þessi þarf svo ekki frekari skýringa við; stj. er heimilt samkv. henni að velja um, hvert þessara veiðivatna hún tekur á leigu.