02.05.1936
Efri deild: 62. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 604 í C-deild Alþingistíðinda. (2971)
123. mál, klaksjóður og klakstöðvar
*Þorsteinn Briem:
Ég tel það horfa til bóta við frv., að hv. landbn. hefir flutt brtt. um, að klaksjóðsgjaldið skuli lækka niður í 3 aura, en ég tel hana ekki hafa gengið nógu langt, ekki tekið tillit til þess, að fiskiræktarfélög hafa sumstaðar komið upp myndarlegu laxaklaki, sem þau hafa í hyggju að halda áfram með. Þar sem því svo er ástatt, að fiskiræktarfélög hafa komið upp laxaklaki á fullkomnasta hátt, virðist ekki vera sanngjarnt, að þau verði líka látin greiða klaksjóðsgjald. Með því yrðu þau ósanngjarnlega hart úti. Til þess að fyrirbyggja það, að óánægja eða misrétti geti átt sér stað sakir þessara hluta, þá hefi ég leyft mér að bera fram skrifl. brtt., sem fer í þá átt, að þau fiskiræktarfélög, sem stunda laxaklak á fullkomnasta hátt, að dómi veiðimálastjóra, verði ekki látin greiða þetta gjald.