02.05.1936
Efri deild: 62. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 604 í C-deild Alþingistíðinda. (2975)
123. mál, klaksjóður og klakstöðvar
*Jónas Jónsson:
Ég vil aðeins taka það fram út af orðum hv. 2. þm. Rang., að reynsla er fengin fyrir því, að það hefir ekki tekizt að fá Laxá við Mývatn og Reykjadalsá friðaðar, svo hægt sé að taka þær til ræktunar, með þeim lagafyrirmælum, sem nú gilda. Og því til sönnunar má geta þess, að Vilhjálmur Þór á Akureyri hefir sent byggingarefni í klakhús þangað austur, en eigi að síður hefir ekkert samkomulag náðst um ræktun ánna. Þarna eiga 50–60 menn hlut að máli, og því erfitt að sameina þá um þetta. Annars býst ég við, að þeir myndu verða ánægðir, ef árnar yrðu friðaðar á þann hátt, sem frv. gerir ráð fyrir. En verði 4. gr. frv. felld niður, myndi það verða til þess að eyðileggja það gagn, sem af ánum mætti annars verða með því að taka þær til ræktunar.