18.04.1936
Neðri deild: 51. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í D-deild Alþingistíðinda. (2993)
84. mál, friðun Faxaflóa
*Flm. (Ólafur Thors):
Með þessari þáltill., sem flutt er af hv. þm. Borgf. og mér, er farið fram á, að ríkisstj. geri tilraunir til að fá viðurkenningu á því, að Faxaflói skuli teljast innan íslenzkrar landhelgi, enda friðaður fyrir botnvörpungum. Þetta mál hefir áður legið fyrir Alþingi, og þá oft verið gengið lengra í kröfum en nú. Ég fullyrði, að ef það væri á valdi íslenzkrar löggjafar einnar að ákveða, hverjar ráðstafanir skyldu gerðar í þessu efni, þá væri tvímælalaust hægt að fá framgengt friðun flóans og banni við botnvörpuveiðum þar, því að þótt enn séu ekki óskiptar skoðanir manna um gagnsemi slíkrar friðunar, þá hika ég ekki við að fullyrða, að þær skoðanir hafa nú orðið lítið fylgi, sem neita þessari gagnsemi. En því er nú svo farið, að við erum ekki einráðir um þessi mál. Um landhelgi hvers lands gilda alþjóðareglur, og er því ekki hægt að gera öruggar breytingar á þeim, nema samþykki annara þjóða komi til, og þá fyrst og fremst Bretlands. Mér er það ljóst, að í þeim málaleitunum mun það ekki verða talið aðalatriði, hvort hægt verður að sanna, að breytingar í þessu efni væru til hagsbóta fyrir Ísland sjálft. Þyrfti fyrst og fremst að færa líkur að eða sönnur á, að friðunin væri líka hagur þeirra erlendu þjóða, sem hlut eiga að máli, og er það reyndar skoðun mín, að svo sé í raun og veru. Ég álít, að þetta sé hagsmunamál allra þeirra þjóða, er hér stunda fiskveiðar. En það er sitt hvað, að hafa sjálfur ákveðna skoðun og að geta sannfært aðra um réttmæti hennar. Af niðurstöðum aukinna vísindarannsókna síðari ára virðast líkur til, að hægt sé að færa almennar líkur að þessu, þótt ekki geti orðið um óyggjandi sannanir að ræða. Og þótt til væru sannanir, sem varla væri hægt að komast hjá að viðurkenna, að vísindalegt gildi hefðu, efa ég, að björninn væri þar með unninn. Hér er um að ræða „princip“mál, sem erfitt er að sækja, sérstaklega á hendur Englendingum, sem eru jafnan mjög fastir í gömlum venjum í slíkum efnum. En alþjóðaráðstefnur hafa þó fjallað um mál eins og þessi, og hefir þá komið fram ýmislegt, sem gæti gefið vonir um árangur af þessum málaleitunum. Í grg. segir frá því, að af 33 þjóðum, sem þátt tóku í umr. um víkkun landhelgi, voru 17 þessu fylgjandi, en sá ljóður var á, að til þeirra, sem á móti voru, töldust öll stórveldin.
Hinsvegar hefir okkur flm. till. sýnzt, að nýjar vonir gætu falizt í þeim samningum, sem nú standa á milli Norðmanna og Englendinga út af svipuðu máli. Við norðurströnd Noregs hafa Norðmenn nú fært út landhelgislínuna á nokkru svæði, án þess að fá áður um það samþykki annara þjóða. Englendingar hafa að vísu mótmælt þessu harðlega, en í sambandi við það virðist mér, að komið hafi fram möguleikar til samningaumleitana um það, hvort Englendingar gætu ekki fallizt á, að hrygningarstöðvar utan landhelgislínu væru friðaðar, um nokkurn hluta árs a. m. k., með því að þeim verði það ljóst, að þar sé um hagsmuni fyrir þá að ræða, og ef þeim á annað borð yrði það ljóst, þá er það víst, að eitt hið fyrsta svæði, sem yrði friðað, yrði Faxaflói, því að við Faxaflóa og í sjálfum Faxaflóa eru einhver hin beztu hrygningarsvæði fyrir þorsk, sem til eru í heiminum. Ég held þess vegna, að það sé öruggt, að þegar þjóðirnar hafa öðlazt skilning á gildi þess, að hrygningarsvæðin séu friðuð, þá verði Faxaflói fyrst og fremst friðaður.
Eins og ég hefi þegar tekið fram, þá viðurkenni ég það fyllilega, að það er sitt hvað, að fara fram á þetta og að fá því framgengt. En jafnvel þótt í þessu fælist ekki nema veikasta von um sigurvænlegan framgang málsins, þá bæri Íslendingum skylda til að hefja baráttu fyrir því. Hér við Faxaflóa býr nú um 1/3 hluti þjóðarinnar; langmestur hluti þess býr hér í Reykjavík og svo í Hafnarfirði, Keflavík og öðrum sjóþorpum þar í grennd, og einnig á Akranesi og í Borgarnesi, og að langmestu leyti hefir allt þetta fólk lífsuppeldi sitt af sjávarútvegi, og þess vegna verða allir þeir örðugleikar, sem sjávarútvegurinn mætir, fyrst og fremst á vegi þess, og á ég þar fyrst og fremst við þá örðugleika, sem við ráðum sízt við, og þá einkum þær markaðsskerðingar, sem verða í gömlu markaðslöndunum, og til þess að verjast þeim örðugleikum sé ég ekki aðrar leiðir heldur en þær, ef takast mætti að vinna þessar markaðsskerðingar upp með því að afla nýrra markaða og með nýjum verkunaraðferðum. Á ég þar fyrst og fremst við það, ef takast mætti að vinna markað fyrir sölu á hraðfrystum fiski, þar sem sá markaður kynni að opnast, og það er enginn vafi, að verður í mörgum löndum.
Eldri reynsla sýnir það ljóslega — og þarf ekki lengra að fara en til þeirra ára, þegar heimsstyrjöldin stóð yfir, til þess að finna glöggt dæmi þess, — að þegar Faxaflói er friðaður fyrir botnvörpuveiðum, þá glæðist aflinn að miklum mun. Á stríðstímanum höfðu Englendingar, Þjóðverjar og Frakkar, svo sem kunnugt er, öðrum hnöppum að hneppa en að stunda hér veiðar, og mátti þess vegna heita, að á þeim árum væri Faxaflói friðaður, og komu afleiðingar þess fljótt í ljós.
Ég þarf ekki að fjölyrða um það, hvílíkur fengur það væri fyrir það fólk, sem hér býr og horfir nú fram til vaxandi örðugleika vegna þverrandi afla og markaða, ef Faxaflói væri friðaður og gnægð yrði af fiski, og svo ef hinsvegar tækist að opna nýja markaði.
Að því er þennan bæ snertir (sem ég álít, að eigi allra örðugast með að mæta hruni sjávarútvegsins), þá finnst mér, að hverjum, sem hefir djörfung til að líta réttum augum á alla afkomumöguleika eins og þeir eru, hljóti að hrjósa hugur við, hvernig ástandið er, ef ekki opnast nýjar leiðir.
Ef litið er til ársins 1920, þá voru hér í bæ helmingi færri menn en nú. Þessir menn áttu þá, eins og nú, afkomumöguleika sína undir útgerðinni, en hún var þá meiri en nú. — Sú útgerð, sem þurfti að brauðfæða 18 þús. menn, var meiri en sú, sem nú á að standa undir lífsmöguleikum 34 þúsunda. Auk þess var munurinn á þeirri útgerð, sem þá var rekin, og þeirri, sem nú er, sá, að þá var útgerð rekin með sæmilegri útkomu og stundum með beinum gróða, en nú um 6 ára skeið hefir öll útgerð hér verið rekin með halla. Það má segja að sé ráðgáta, hvernig fólk hér fer nú að því að komast af, og ég veit ekki, hvort hv. þingmenn hafa gert sér grein fyrir því.
Ég hefi stundum verið að hugleiða þetta, en ég finn, að mig skortir þekkingu til þess að geta gert grein fyrir þeirri röskun, sem orðið hefir á atvinnulífinu frá því fyrir 10–20 árum, þegar það var heilbrigt og blómlegt, og þangað til nú að það er orðið svo sjúkt sem raun ber vitni um. En ég vil leiða athygli hv. þm. að einu atriði, til þess að leiðbeina og að sumu leyti að gefa nokkra skýringu á því, að það fólk, sem nú býr þér, getur haft afkomumöguleika, enda þótt framleiðsla sú, sem stendur undir afkomumöguleikum þess, sé minni heldur en hún var þegar það var helmingi færra.
Allverulegur þáttur þessarar ráðgátu leysist, þegar litið er yfir bæinn. Hér hafa sprottið upp ekki eingöngu heilar götur, heldur heil hverfi, og hús hafa verið byggð fyrir 5–7 millj. á ári. En þessar framkvæmdir hafa verið annaðhvort gerðar fyrir sparifé einstaklinga, sem safnaðist á þeim árum, þegar atvinnan var góð, eða fyrir það lánstraust, sem skapaðist á þeim tíma, en nú er svo komið, að þessi leikur verður ekki leikinn oftar, og þá kemur það í ljós, að hér í bænum lifa þúsundir manna á atvinnurekstri, sem er óarðbær og ekki er hægt að halda uppi nema á meðan verið er að eta upp eignir manna og lánstraust, og þessar eignir (þ. e. húsin) eru að því leyti gagnslausar, að þær geta ekki staðið undir nýjum afkomuskilyrðum fyrir þjóðina, og að því leyti, sem húsin eru reist fyrir lánsfé frá útlöndum, eru þau baggi á þjóðinni. En þetta skýrir nokkuð þá furðulegu staðreynd, að hér hafa um áratugi getað lifað fleiri menn heldur en gátu haft afkomumöguleika sína við raunverulega arðvænlega framleiðslu. Þegar að því er komið, að eignirnar eru uppétnar og lánstraustið er þorrið, þá er ekki lengur hægt að brauðfæða öll þau þúsund manna, sem lifað hafa á þennan hátt, en það skapar ríkari þörf fyrir nýja möguleika, og hvort sem ég heldur lít til Reykjavíkur, Hafnarfjarðar Reykjavíkur, Akraness eða Borgarness, hvort heldur sem ég lít til hægri eða vinstri, þá sé ég ekki neitt, sem gæti skapað aðra eins afkomumöguleika fyrir þetta fólk eins og ef það næðist að fá Faxaflóa friðaðan — og að skapa nýja markaði.
Ég vona, að hæstv. forsrh. taki vel í þetta, en ég get endurtekið það, sem ég sagði fyrr, að sigurinn er ekki vís í þessu máli, þótt till. sé samþ., en ég vil minna á hið fornkveðna, að „liggjandi úlfr lær ei getr, né sofandi maðr sigr“. — Ef ekkert er reynt, er einskis sigurs að vænta.