23.03.1936
Efri deild: 31. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í B-deild Alþingistíðinda. (301)
5. mál, ríkisútgáfa námsbóka
* Frsm. (Jónas Jónsson):
Þetta mál var rætt ýtarlega hér á þingi í vetur, og þarf ég því ekki að hafa um það langt mál að þessu sinni. Menntmn. var ekki einhuga um málið, og kom minni hl. með brtt., en annars má segja, að allgott samkomulag hafi verið um aðalefni frv., svo að þótt minni hl. kæmi með þessa brtt., álítur hann samt, að svo mikill glundroði sé á útgáfu kennslubóka, að ástæða sé til að gera þessa tilraun. Aftur vildi minni hl. ekki láta þetta ná til unglingafræðslunnar að svo komnu máli.
Afstaða meiri hl. var sú, að breyta þessu sem minnst. Og með því að það liggur nú í loftinu að breyta fyrirkomulagi á barnafræðslunni í það horf, að enn meiri þörf verði á unglingafræðslu, virðist sjálfsagt, að haft verði samstarf um tilhögun þessa tvenns: barna- og unglingafræðslunnar.
Viðvíkjandi 1. brtt. n., að í stað orðanna „stjórn Sambands“ komi: fulltrúafundi Sambands, er það að segja, að hún er gerð eftir ósk barnakennara. Þeir gætu þá kosið mann í n. þessa í fyrsta sinni í vor.
Um síðari brtt., að lækka kennslubókagjaldið að tveim árum liðnum, vil ég taka það fram, að tilgangurinn með því að halda því svona háu fyrstu tvö árin er sá, að hlífa ríkisstj. við því að þurfa að taka stór lán til þessara hluta. Ég geri ráð fyrir, að hv. 1. þm. Eyf., sem minntist á þetta við 1. umr., telji það vera til bóta. — Ennfremur hefir verið sett inn í þessa brtt. ákvæði um, að á þetta skuli falla innheimtugjald, eins og á sér stað um alþýðutryggingarnar, af því að sýslumenn hafa yfirleitt ekki þau sældarkjör. Þó er undantekning gerð um þá sýslumenn, sem hafa skrifstofufé eftir reikningi, eins og t. d. tollstjórinn í Reykjavík. Vona ég, að hv. þingd. átti sig á þessu. Sé ég svo ekki ástæðu til að fara um málið fleiri orðum, en vænti, að því verði tekið vel, eins og gert var í vetur.