09.05.1936
Sameinað þing: 21. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (3019)

72. mál, sjómælingar og rannsóknir fiskimiða

*Frsm. minni hl. (Pétur Ottesen):

Ég hefi nú verið að reyna að leggja hlustirnar við ræðu frsm. meiri hl., en sökum þeirra miklu samtala, sem verið hafa milli hv. þm., hefir ekki verið hægt að fylgjast fyllilega með því, sem hann sagði, því að aðrar raddir hafa yfirgnæft. Ég vil leyfa mér að biðja forseta annaðhvort að gefast upp við að halda fundinn eða þá að halda reglu á fundinum. (Forseti: Það mun vera kominn ferðahugur í hv. þm., en ég vil nú biðja menn að hafa hljótt).

Það var rétt, sem frsm. meiri hl. sagði, að það er ekki mikið, sem ber milli n.hlutanna. Báðir viðurkenna nauðsyn á, að þetta sé framkvæmt, en það er aðeins um þá aðstöðu eða þær leiðbeiningar, sem ríkisstj. á að fá og leita sér upplýsinga um. Það er í sambandi við þessar framkvæmdir, sem ágreiningur er í n. Við þær rannsóknir á fiskimiðum, sem fram hafa farið hér við Ísland bæði af erlendum og innlendum fiskifræðingum, hefir komið í ljós, að fiskurinn gengur allmikið milli Íslands og Grænlands. Og klakstöðvarnar hér við land eru ekki einasta til að halda við þeim þorski, sem hér er við land, heldur líka þeim þorskstofni, sem er við strendur Grænlands. Hefir þetta mikla þýðingu fyrir fiskveiðar hér í norðurhöfum, að það eru ekki einasta klakstöðvar hér fyrir fiskveiðarnar hér, heldur líka fyrir fiskveiðar í norðlægari löndum. Það leiðir því af sjálfu sér, að það er sjálfsagt, að þeir, sem beita sér fyrir rannsóknunum, láti álit og till. fiskifræðinga landsins ráða um þessi mál. Okkur minni hl. er ekki kunnugt um, að neinn af þeim mönnum, sem skipa fiskimálan., sé sérfræðingur á þessu sviði, og við álítum, að til þeirra sé því ekki að sækja neinar leiðbeiningar um fiskifræðileg efni. Þess vegna nær það náttúrlega ekki nokkurri átt að fela fiskimálan. þetta, og er það alveg út í hött að tala um hana í þessu sambandi. Það er þá nær að benda á t. d. Fiskifélag Íslands eða skipstjórafélagið hér, sem er saman sett af þrautreyndum skipstjórum, sem hafa stundað fiskveiðar hér við land í fleiri ár, til þess að takast þetta á hendur, heldur en fiskimálan., sem er saman sett með allt annað starf fyrir augum, og auk þess þannig, að þar er a. m. k. ekki aðalatriðið að sjá fyrir þeirri fagþekkingu, sem nauðsynleg er í þeim málum, sem þessi n. á yfir að ráða. Það er harla undarlegt í þessu sambandi, ef ganga á framhjá fiskifræðingum þessa lands, þegar hefja á þessar rannsóknir. Okkur minni hl. þótti því sjálfsagt að setja það beint inn í till., að ríkisstj. ætti að styðjast við till. og álit fiskifræðinga landsins. Um hitt atriðið, hvaðan eigi að taka peninga til þess kostnaðar, sem af þessu leiðir, er það að segja, að báðar till. gera ráð fyrir því, að hann sé greiddur úr ríkissjóði, en jafnframt heimilað að borga hann að meira eða minna leyti úr fiskimálasjóði. En það þarf vitanlega ekki að sækja það á náðir fiskimálan., hvort fé sé varið úr þessum sjóði eða ekki, því atvmrh. ræður yfir öllu því fé, sem þar er um að ræða. Í okkar till. er gert ráð fyrir, að þetta sé greitt úr ríkissjóði, og það verður alltaf að nokkru leyti að því er snertir útgerð Þórs. En ef svo þykir hentugra, þá sé atvmrh. heimilt að greiða þetta úr fiskimálasjóði. Mér virðist því það liggja opið fyrir, svo framarlega sem á að haga sér þannig við þessar rannsóknir eins og skynsemin bendir á, að nota krafta fiskifræðinga við þetta starf, þá sé sjálfsagt að samþ. þá brtt., sem minni hl. gerir við þáltill. hv. 6. þm. Reykv.