09.05.1936
Sameinað þing: 21. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (3027)

72. mál, sjómælingar og rannsóknir fiskimiða

Jóhann Jósefsson:

Þessi till. til þál., sem hér liggur fyrir, um rannsókn fiskimiða, er þess eðlis og þannig orðuð, að maður skyldi ætla, að ekki yrði um hana mikill ágreiningur. Þar er tekið fram, að þingið feli ríkisstj. að láta fara fram rannsókn á þessum hlutum, og er algengt að komast þannig að orði í þáltill. um undirbúning og rannsókn vissra mála, hvort heldur sem er til sjós eða lands. En stjórnarmeirihlutanum virðist réttara að troða þarna inn á milli fiskimálanefndinni, og er það vitanlega gert eftir kröfu þess ráðríka manns, sem þar hefir verið falin formennska og ræður þar öllu, sem hann vill, en er vitanlega óhæfur til þessa starfs. Og ég verð fyrir hönd útvegsmanna að áfella þennan mann fyrir þessi störf. Þessi maður hefir aldrei komið nærri fiskverkun, fiskveiðum né fiskverzlun, en er nú látinn troða sér inn í hvert mál, sem snertir sjávarútveginn, þó að hann hafi á því sviði aldrei haft neina frumlega hugsun. En hann treður sér fram til að ræna hugmyndum annara, og á þann hátt reyna að fá fjöður í sinn hatt fyrir það, sem öðrum hefir hugkvæmzt. Þetta kann ekki góðri lukku að stýra.

Þessi maður er aðeins frægur fyrir eitt í þessu landi, það er að geta kúgað verkalýð Reykjavíkur, og svo að segja svínbeygt þá með svipunni til að lúta sínu boði og banni. En þó að honum hafi tekizt þetta, og þó að hann hafi kúgað stjórnarflokkana, eins og t. d. í þessu máli, þá er hann ekki ennþá búinn að kúga fiskeigendur í þessu landi, og ég vona, að þeir verði honum þyngri fyrir en bæði verkamennirnir og ríkisstj., sem hefir nú látið hann kúga sig í þessu máli, sem er, eins og réttilega var fram tekið af hv. þm. Borgf., bæði óþarft og ástæðulaust. Því eins og ég benti á áðan, þá er ríkisstj. oft falið að hafa framkvæmdir á slíkum hlutum. Og það sýnir ekki mikið traust á stj. hjá þeim aðstandendum hennar, sem vilja fela hv. 2. þm. Reykv. að hafa afskipti af þessu, manni, sem vitað er, að ekki hefir haft önnur afskipti af útvegsmálum en selja olíu til mótorbátaflotans. Vitanlega er nauðsynlegt, að einhver hafi það verk með höndum, og það skal ekki átalið, þó að hann sé voldugur kaupmaður á því sviði; það kemur ekki þessu máli við. En það er í mesta máta undarlegt, að fela skuli honum að leita að fiskimiðum, og þeim, sem með honum eru í fiskimálan., en vitað er, að þar er þannig skipað lið, að hann ræður lögum og lofum.

Er fjarskalega leitt til þess að vita, að ekki skuli mega hreyfa máli til framdráttar sjávarútveginum öðruvísi en óviðkomandi mönnum sé troðið þar inn í, og það þeim mönnum, sem ekki virðast geta annað en það, sem miður fer. Þetta er óþolandi ábyrgðarleysi, alveg á sama hátt og hið ofsalega kapphlaup hv. 2. þm. Reykv. við hvern þann mann eða stofnun, sem lætur sér detta eitthvað í hug, sem viðkemur sjávarútveginum. Er skemmst að minnast þess, þegar S. Í. F. vill framkvæma eitthvað, þá kemur þessi maður og vill með ofurkappsfullu kapphlaupi hrifsa allt til sín, sem miðar aðeins að því að eyðileggja allt, sem er til framdráttar sjávarútveginum og það opinbera skiptir sér af. Fer að verða lítil von fyrir þá, sem þennan atvinnuveg stunda, að geta nokkru orkað til bóta, því allir vita, hvernig búið er að þeim, sem einhvers meta framtak einstaklingsins.

Enda hefði engum heilbrigðum þingmeirihluta dottið í hug að breyta þessu eðlilega orðalagi till., þar sem farið er fram á það — af stjórnarandstæðingunum — að fela stj. þessar framkvæmdir, enda hefir engum dottið þetta í hug fyrr en hv. 2. þm. Reykv., sem er orðinn nokkurskonar yfirráðherra, heimtar, að sér sé þrengt þarna inn á milli sem nokkurskonar framkvæmdarstjóra.

Ég sé enga ástæðu til að fallast á þetta, jafnvel þó að hv. þm. segi sem svo, að ef hans vilji gangi ekki fram, þá skuli þessi till. falla. Ég sé enga ástæðu til fyrir hv. þm. að beygja sig fyrir vilja hans, þar sem hann hefir ekki gert neitt það á sviði sjávarútvegsins, er sýni, að hann sé fær til þeirra verka, hvort heldur sem er á sjó eða landi.