23.03.1936
Efri deild: 31. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í B-deild Alþingistíðinda. (303)

5. mál, ríkisútgáfa námsbóka

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Brtt. nr. 1 á þskj. 200, um að í staðinn fyrir stj. Sambands barnakennara komi fulltrúafundur Sambands barnakennara, get ég fallizt á.

Um 2. brtt. á sama þskj. verð ég að segja, að ég sé ekki, að hún sé stórfelld breyting frá fyrra hluta 7. gr. að öðru leyti en því, að 2% innheimtugjaldið er ákveðið handa þeim sýslumönnum, sem ekki hafa skrifstofufé samkvæmt reikningi. Við það hefi ég í rauninni ekkert að athuga. Í þessu sambandi vil ég benda á prentvillu í till. Þar stendur: „að fengnum till. ríkisstjórnar,“ en á að vera „ritstjórnar.“

Þá mun það vera misskilningur hjá hv. tillögumönnum að gera ráð fyrir því, að síðasta málsgr. þessa málsliðar eigi að falla niður. Hún hljóðar svo: „Geti framfærandi skólaskylds barns ekki greitt námsbókagjaldið, skal það greiðast úr sveitarsjóði sem önnur gjöld til skólahalds.“ Ég geri ráð fyrir, að n. hafi ekki ætlazt til, að þetta félli niður. Það væri afturför frá því, sem nú er.

Viðvíkjandi brtt. á þskj. 201 verð ég að segja, að ég get ekki fallizt á, að synodus sé eðlilegri aðili en kennarar. Mér þykir sennilegt, að ef þetta fyrirkomulag gefst vel, þá verði það líka tekið upp að því er snertir aðra skóla, en fyrst um sinn verður að bíða og sjá, hver raunin verður á. En þess vegna get ég ekki heldur verið því samþykkur, að 10., 12. og 13. gr. falli niður.