09.05.1936
Sameinað þing: 22. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í D-deild Alþingistíðinda. (3053)
131. mál, þjóðleikhúsið
*Flm. (Jónas Jónsson):
Þessi þáltill., sem við erum 3 flm. að, sinn úr hverjum flokki, lýtur að því að skora á stj. að undirbúa fyrir næsta þing frv. til l. um eignarnámsheimild á vissum mannvirkjum hér í bænum, til þess að unnt sé að gera torg framan við þjóðleikhúsið, á milli Hverfisgötu og Laugavegar. Ennfremur sé það um leið lögákveðið, að þær ríkisstjórnir, sem verða hér við völd í framtíðinni, láti ekki byggja á baklóð safnahússins við Hverfisgötu, þetta er í stuttu máli efni till., og mun það vera öllum hv. þm. kunnugt af því, sem ég hefi skrifað um það í blöðin. — Það er yfirleitt almenn ánægja í bænum yfir því, hvað þjóðleikhúsið er fallegt og myndarlegt, en hinsvegar ríkjandi óánægja út af því, hvað það nýtur sín illa á þessum stað vegna þrengsla af öðrum húsum í nágrenninu. Og þegar búið verður að fullgera leikhúsið, þá mun reynast óþægilegt að nota það, ef ekki verður rúmgott torg út frá því í tvær áttir, til vesturs og suðurs. Ég veit, að sumir þm. Reykjavíkurbæjar líta svo á, að ef þessar lóðir framan við þjóðleikhúsið verði teknar eignarnámi, þá sé eðlilegast, að bærinn geri það. En ef ríkið offrar dýrri baklóð við safnahúsið og þjóðleikhúsið, án þess að hafa nokkuð upp úr henni, þá er það nokkur þátttaka eða fórn frá þess hálfu. Eftir þeirri reynslu, sem fengizt hefir víða erlendis, þar sem gerð hafa verið torg umhverfis opinberar byggingar, þá hafa lóðirnar í grennd við það hækkað svo gífurlega í verði, að sú verðhækkun hefir borgað kostnaðinn við að rýma byggingum frá torginu. Er talið, að þegar útbúið var torgið umhverfis ráðhúsið í Osló, hafi orðið að rífa niður mörg smáhús, og kostaði það mikla fyrirhöfn. En því var treyst, að verðhækkun lóðanna mundi standa undir þeim kostnaði, og reyndist það fyllilega, því að í nánd við torgið risu upp ný verzlunarhús og aðrar arðvænlegar byggingar.
Ég vænti svo, að þessi þáltill. verði samþ. og að hæstv. ríkisstj. búi þetta mál undir næsta þing.