09.05.1936
Sameinað þing: 21. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í D-deild Alþingistíðinda. (3074)
138. mál, Ítalíufiskur
*Jón Auðunn Jónsson:
Mér þótti vænt um að heyra, að hæstv. fjmrh. er farinn að linast í þessu máli, — vonandi vegna þeirra raka, sem ég hefi flutt fram.
Ég hefi áður skýrt frá því, að svo er ástatt um ýmsa fyrir vestan, sem gera út báta í félagi, að þeir hafa ekki fengið nema 150 kr. úr Spánarfiski, sem álitið er, að gefi 450 kr. í hlut að réttu lagi. En úr Ítalíufiskinum hafa þeir ekki fengið einn eyri, og fá það ekki fyrr en einhverntíma seint og síðar meir. Og þetta verður verra á næsta ári, þar sem Spánn hefir bætzt í tölu þeirra landa, sem gera hjá sér þessar greiðslutálmanir.
Hæstv. ráðh. sagði, að það væri ágætt að geta staðið í skilum um greiðslur skulda hjá lánsstofnunum. En það verður þó að sjá um, að mennirnir geti lifað, og það geta þeir ekki, ef þeim er aðeins gert kleift að greiða skuldir sínar. Og þegar þeir eru komnir undir græna torfu eða þá í sjóinn, má þeim á sama standa, hvort þeir hafa getað greitt allar skuldir sínar eða ekki.