09.05.1936
Sameinað þing: 21. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í D-deild Alþingistíðinda. (3075)
138. mál, Ítalíufiskur
*Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég verð að greiða atkv. á móti þessari till., því að ég álít ekki hægt að breyta l. með fjárl.ákvæðum. En hvenær sem lögleg till. kæmi fram um það, að hleypa línuveiðurum inn í skuldaskilasjóðinn, þá myndi ég greiða atkv. með henni.
Ég hefi áður talað um erfiðleikana á því að útvega erlendan gjaldeyri til að „dekka“ seðlaútgáfuna í landinu. Það lítur út fyrir, að hv. þm. haldi, að hægt sé að bjarga öllum þessum málum með ríkisábyrgð. Ríkisábyrgð þýðir, að ríkið setji verðmæti atvinnuveganna að veði. En nú er fiskurinn okkar aðalútflutningsvara. Ætti þá allur vandinn að vera leystur með því að setja fiskinn að veði fyrir fiskinn. En öll þessi vandkvæði eru í raun og veru líka vandkvæði ríkisins. Eina ráðið er því að takmarka ábyrgðina við sérstakt land, t. d., og hér hefir hún verið takmörkuð við Ítalíu. Það gerir ábyrgðina nokkurs virði. Eins gerir það hana nokkurs virði, að hún er takmörkuð við ákveðna tölu, neðan við 100%. Ef till. kæmi um einhverja hækkun á þessari tölu, t. d. upp í 85%, gæti ég líklega fylgt henni. En ef ríkið ætti að taka ábyrgð á öllum fiskútflutningi, væri það sama og að gera þessa ríkisábyrgð að engu. Það gæti t. d. líka komið fyrir, að fiskurinn yrði of mikill fyrir þann markað, sem við höfum aðgang að. Gæti þá samlagið tekið fiskinn, flutt hann til lokaðra landa, látið hann liggja þar og látið ríkið síðan hafa allan vanda af honum. þetta sýnir, að ábyrgð og framkvæmd verða að vera á sama stað. Nú held ég því ekki fram, að S. Í. F. myndi í raun og veru skella öllu á stj. og skjóta sjálfu sér undan. En ég vildi aðeins undirstrika þetta, að framkvæmd og ábyrgð eiga að vera hjá sama aðilja. — Það væri auðvitað ágætt, ef 100% ríkisábyrgð gæti bjargað öllu.