19.02.1936
Sameinað þing: 3. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í D-deild Alþingistíðinda. (3089)
75. mál, þingfréttir í útvarpi
*Sigurður Einarsson:
Af því að ég hefi átt tal við útvarpsstjóra og menn í útvarpsráði um þetta mál, vil ég gefa dálitla skýringu til viðhótar því, sem fram hefir komið.
Það hrökk fram hjá einum hv. þm. utan dagskrár, að til fréttaritara þess, sem flytur fréttir frá Alþ. í útvarpinu, hefði ekki verið vandað af hálfu útvarpsins. En af öðrum hv. þm. var það viðurkennt, að stundum hefði þetta starf þó verið leyst svo af hendi, að engin ástæða væri til að fetta fingur út í það. Útvarpsstjóri hefir í hverju tilfelli reynt að velja til þessa starfa færan mann. En af hálfu útvarpsstjóra og útvarpsráðs þykir óviðfelldið og óæskilegt að standa í deilum út af þessu starfi, og einnig hitt, að verulegur hluti hv. alþm. sé óánægður með það, hvernig starfið sé af hendi leyst.
Þetta starf hefir reynzt svo mikið starf á undanförnum árum, þegar það hefir verið gert, að það hefir tekið mann að verulegu leyti. Útvarpið hefir borgað honum 10 kr. á dag, virka daga og helga um þingtímann, og þykir það hæfilega goldið. Og slíka borgun býðst útvarpið enn til að greiða manni fyrir þetta starf, en fer aðeins fram á, að til þess að forðast slíkan ágreining í framtíðinni, sem nú hefir komið fram út af þessu starfi, velji Alþ. manninn til starfsins, sem svo starfaði á kostnað útvarpsins.
Mér er óhætt að fullyrða, að í aðstöðu útvarpsstjóra hefir ekki komið annað fram en óskir um, að framkvæmd þessa starfs yrði í framtíðinni hagað þannig, að ekki þyrfti að verða óánægja út af eða stímabrak á hinu háa Alþ. Og útvarpið telur sér heimilt, þó að þingið veldi manninn til þessa starfs, að greiða honum kaup, því að það telur, að hér sé um verðmæt efni að ræða, þar sem eru fregnir frá Alþ., sem útvarpshlustendum sé nokkurs virði að fá.